28.02.1931
Efri deild: 12. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1207 í C-deild Alþingistíðinda. (1709)

52. mál, verðfesting pappírsgjaldeyris

Flm. (Jón Þorláksson):

Það er náttúrlega hægt að ræða um það við hv. 2. landsk., hverjir erfiðleikar muni verða í framkvæmd slíkrar löggjafar. Ég fyrir mitt leyti er ekkert hræddur við þá. Ég geri ráð fyrir, að erfiðleikarnir, sem hann á við, standi í sambandi við það, að það á að verða breyting í aðalviðskiptunum á stærð gjaldeyriseiningarinnar. En það, að breyta til um stærð gjaldeyriseiningarinnar er engin nýjung, hvorki hér á landi né annarsstaðar. Það hefir ósköp oft verið gert, og nægileg fordæmi eru fyrir því, að það veldur ekki neinum teljandi vandræðum.

En það var annað, sem hv. þm. sagði, sem væri athugunarmál, ef rétt væri, að þær stéttir, sem hefðu haft tjón af gengislækkuninni, ættu líka að bíða tjón af umreikningnum eða hækkuninni. Þetta fer nokkuð eftir því, hvað það er, sem hv. þm. hefir í huga til samanburðar. Má færa þessum orðum hans dálítinn stað, ef hann hefir venjulega hækkun upp í gullgildi til samanburðar, því að það mundi færa sömu stéttum hagnað, sem hafa beðið tjón af gengislækkuninni. Og þar sem þetta frv. fer ekki fram á sömu leið, má segja, að það svipti þær voninni um hagnað af gengishækkun. En lengra fer það ekki. Því beri hv. þm. þetta saman við myntlagabreytingu á hinn bóginn, felur þessi leið ekki í sér nokkuð í samanburði við það, sem myntlagabreyting mun hafa í för með sér til tjóns fyrir þessar stéttir.

Að því leyti er það ekki rétt hjá hv. þm., að um beint tjón af þessum ráðstöfunum getur ekki verið að ræða fyrir þessar stéttir, en aðeins um missi hagnaðarvona, sem bundnar eru við aðra úrlausn málsins.