11.03.1931
Efri deild: 21. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í C-deild Alþingistíðinda. (1727)

109. mál, fátæktarlög

Jón Jónsson:

Ég álít, að hér sé gott mál á ferð. Fátækraflutningarnir koma án efa hart niður á mörgum og eru til lítils sóma fyrir þjóðina. Því tel ég, að virðingarvert sé að reyna að koma í veg fyrir þá, einkum þegar gamalmenni og ekkjur eiga í hlut. En í ýmsum öðrum tilfellum get ég eigi séð, að fátækraflutningur þurfi að vera athugaverður, t. d. þegar slæpingjar og vandræðamenn eiga hlut að máli. Yfirleitt hygg ég, að segja megi, að fátækraflutningar séu nú orðið framkvæmdir svo mannúðlega og drengilega sem föng eru á. Þótt misbrestur hafi orðið á því fyrr á tímum, sé ég ekki, að ástæða sé til að rifja slíkt upp nú. Slíkt hefir venjulega fremur stafað af þröngum hag en nokkurri mannvonzku.

Ég tel, að farið sé út á allvarhugaverða braut í 2. mgr. 1. gr. Ég vil skjóta því til n., sem þetta mál fær til meðferðar, hvort ekki sé hægt að koma þessu fyrir á annan hátt. Það er tíðum hart aðgöngu fyrir framfærslusveit að greiða miklu hærra meðlag með þurfalingum í dvalarsveit þeirra en þurfa myndi heima fyrir. Mér dettur í hug sú leið, hvort ekki mætti skipta þeim kostnaði, sem af því leiðir, að láta þurfalinga dvelja í annari sveit en framfærslusveitinni, að helmingi milli dvalar- og framfærslusveitar. Sú aðferð gæti einnig orðið til þess, að frekara eftirlit væri um, að sá kostnaðarmunur færi ekki úr hófi fram.