11.03.1931
Efri deild: 21. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í C-deild Alþingistíðinda. (1729)
109. mál, fátæktarlög
Halldór Steinsson:
Ég verð að segja það, að mig furðar á hv. 2. landsk., að hann skuli taka svo í þetta mál eins og raun ber vitni um. Því að fátækramálin eru fremst þeirra mála, er jafnaðarmenn virðast vilja berjast fyrir. Ég hefði búizt við, að hann myndi rísa upp úr sæti sínu til þess að votta hv. 6. landsk. þakklæti sitt fyrir að hafa komið fram með þetta frv. Þvert á móti hélt hann því fram, að þetta frv. myndi draga úr gagngerðum breytingum á fátækral. Hinsvegar viðurkenndi hann þó, að þetta væri spor í áttina, að eins ekki nógu róttækt, og myndi því ef til vill verða til þess að tefja fyrir verulegum umbótum á þessu sviði.
Ég get ekki litið þessum augum á málið, en vil eindregið pakka hv. flm. fyrir frv.; þó það sé ekki upp á það fullkomnasta, þá er það þó góð byrjun. Og er alltaf þakkarvert, þegar þessum málum er hreyft, því að fátækramálin eru hin mestu vandræðamál. Á þeim verður að gera gagngerða breytingu. En það er ekki til neins fyrir einstaka þm. að vera að halda því fram hér á Alþingi, að sumir flokkar séu algerlega andvígir þessum málum. Við verðum að líta á það, að sveitarfélögin eru mismunandi efnum búin. Sumir hreppar hafa engin ráð á því að ala fjölmennar fjölskyldur hér í Reykjavík. Það er enginn vafi á því, að hreppsnefndir vilja yfirleitt láta fara vel um sína þurfalinga, án tillits til stjórnmálaskoðana, en vegna fátæktar hreppanna verða þær oft að ráðstafa þessum mönnum öðruvísi en þær annars gerðu, ef nóg efni væru fyrir hendi. Það gæti komið til mála, sem hv. 2. landsk. benti á, að gera landið að einu framfærsluhéraði, og býst ég við, að ég gæti fylgt honum á þeirri braut, ef ekki væri um heppilegri leiðir að ræða. Þetta frv. er ekki nema spor í áttina, eins og ég tók fram áður. Enda er hætt við, að þessi lagaákvæði yrðu allmikið misnotuð, eins og hæstv. fjmrh. benti á í sinni ræðu. Viðvíkjandi framfærslukostnaði, þá er hann oft svo mikill, að margar sveitir megna ekki að bera helming þessa kostnaðar, hvað þá meira.
Ég veit um margar fjölskyldur hér í Reykjavík, sem ekki hafa viljað flytja og orðið hafa framfærslusveitunum mjög dýrar. Þetta er þess vegna mjög erfitt og vandasamt spursmál. Það ætti því að vera fyrsta skrefið í þessu máli, að láta framfærslukostnaðinn koma tiltölulega jafnt niður á hina ýmsu hreppa landsins.
Ég vil lýsa yfir því, að ég er sammála hv. 3. landsk. um það, að engin ástæða er til að hlífa öllum við fátækraflutningi. Vil ég máli mínu til stuðnings nefna slæpingja, sem helzt vilja dvelja í sollinum í Reykjavík. Þessir menn eignast oft börn, sem þeir ekki geta gefið með og sem sveitir þeirra verða að taka að sér. Helzta vopn hreppanna gagnvart slíkum mönnum er einmitt fátækraflutningurinn. Þegar átt hefir að flytja þessa menn, hafa þeir kynokað sér við að fara og þannig borgað eitthvað dálítið upp í kostnaðinn. Er ég því meðmæltur, að þessum mönnum verði engin sérstök vægð sýnd.