11.03.1931
Efri deild: 21. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í C-deild Alþingistíðinda. (1735)
109. mál, fátæktarlög
Halldór Steinsson:
Hv. 2. landsk. vildi mótmæla því, að hann væri andvígur þessu frv. En ég veit ekki, hver er betri sönnun fyrir því en hans eigin orð, þar sem hann sagði, að þetta frv. mundi aðeins verða til þess að tefja fyrir gagngerðri umbót á fátækramálunum og því, að þessi sveitaflutningur falli úr sögunni. Ég held, að þetta sé full sönnun þess, að hv. 2. landsk. er þessu frv. ekki hlynntur.
Hv. þm. talaði um, að fátækraflutningurinn væri ekkert aðhald fyrir slæpingjana, sem ekki nenna að vinna eða bjarga sér. En ég er þar á gagnstæðri skoðun og byggi hana á reynslunni. Ég veit til þess, að margir menn hafa bætt ráð sitt, þegar þeir hafa átt von á því að verða fluttir fátækraflutningi. Einkum er það svo með þá, sem flytjast eiga frá kaupstöðunum til afskekktari héraða. Menn vilja dvelja í sollinum og margmenninu. Ég get að endingu getið þess, vegna orða hv. 2. landsk., að ég er nákvæmlega sömu skoðunar í þessum málum eins og á þinginu 1927 og hefi á engan hátt breytt um stefnu síðan. Ég er alltaf fús að ljá slíkum málum liðsinni mitt, ef þau eru borin fram á skynsamlegum grundvelli.