16.03.1931
Efri deild: 25. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í C-deild Alþingistíðinda. (1769)
137. mál, fimmtardómur
Dómsmrh. (Jónas Jónsson):
Það er í fyrsta lagi leiðinlegur misskilningur hjá hv. 1. landsk., að vita ekki, að enginn tók hið minnsta tillit til hans í þessu máli. Og í öðru lagi er ljóst, að hafi verið hættulegt að semja við þýzkt vátryggingarfélag áður en Dawes-samþykktirnar voru gerðar, þá var það jafnhættulegt eftir það, því að öllum er kunnugt um erfiðleika þýzka ríkisins síðan. En Reykjavíkurbær hefir grætt 60 þús. kr. árlega síðan í skjóli þess, að það hafi verið dæmalaus fásinna, sem hv. 1. landsk. hélt fram.