17.03.1931
Efri deild: 26. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1294 í C-deild Alþingistíðinda. (1779)
149. mál, einkasöluheimild bæjar- og sveitarfélaga
Flm. (Erlingur Friðjónsson):
Á þingi 1929 flutti ég frv. um heimild bæjar- og sýslufélaga til þess að taka upp einkasölu á ýmsum nauðsynjavörum. Þetta frv. er víðtækara en frv. 1929, því þar var ekki gert ráð fyrir, að heimildin yrði notuð nema ef um siglingateppu af völdum hafíss væri að ræða, eða öðrum siglingahindrunum. Hér í þessu frv. er gert ráð fyrir í tveimur fyrstu gr., að bæjarfélög taki einkasölu á nýjum fiski, brauðum, salti, kolum, sementi og trjávið, án þess að sú einkasala sé tekin vegna hættu, er stafi af siglingateppu. M. o. o., sú heimild getur gert þessa verzlun fasta, ef bæjarfélögin nota heimildina á þessum vörutegundum. Það virðist því full ástæða til, að gengið sé lengra en frv. 1929 gerði ráð fyrir, um það, að koma betra skipulagi á sölu þeirra vörutegunda, sem telja má þarfar og nauðsynlegar og almenningur þarf að geta fengið með sem hagkvæmustum kjörum. Og ég býst við, að menn hafi almennt tekið eftir því, að sú vörutegund, sem menn nota mjög mikið til fæðu, fiskur, er einkennilega dýr hér á landi, miðað við það, sem fyrir hann fæst á erlendum markaði.
Það mun láta nærri, að fast verð á fiski hér á götunum í Rvík sé ekki undir 30 aur. kg. Þetta er venjulega sú tegund fiskjar, sem mjög lítið verð fæst fyrir á erl. markaði, þ. e. ýsa. En miðað við þetta smásöluverð fá sölumennirnir 165 kr. fyrir skpd. Tæplega er hægt að gera ráð fyrir, að meira fengist í útlöndum en sem svarar 12 aurum fyrir kg. af nýrri ýsu, eða 60–70 kr. fyrir skpd. Á þessu dæmi sést, að meira en lítið ólag er á fyrirkomulaginu, að svo mikið notuð vara skuli kosta þrefalt hærra verði hér en á erl. markaði. Það mun einnig vera til, að verð á ýsu komist upp í 50 aura kg. eða 250 kr. skpd. Í báðum þessum dæmum er miðað við fiskinn eins og hann kemur upp úr sjónum með haus og slógi. Til þess að ráða bót á þessu væri auðvitað hægt að fá fisk lægra verði, ef bæjarfélögin gera sjálf út fiskiskipin. Og ég held að óhætt sé að gera ráð fyrir, að nógur fiskur fáist á fiskimiðunum kringum landið til þess að fullnægja eftirspurn höfuðstaðarins og annara kaupstaða. Og ekki þarf að efast um að sú útgerð myndi bera sig eins vel, sem rekin væri til þess að selja fisk innanlands fyrir jafngott verð og fengist á útlendum markaði, eins og sú, sem byggir eingöngu á útlenda markaðnum. Ráðið til þess að bæta úr þessu háa verði er það, að bæjarfélögin sjái um, að nógur fiskur sé til fyrirliggjandi með því verði, sem fyrir hann fengist á erl. markaði. Það er í alla staði óeðlilegt, að þessi vara sé dýrari hér á landi en hún er seld á erl. markaði eftir að vera flutt héðan.
Ég efast heldur ekki um, að hægt sé að framleiða brauð ódýrar en á sér stað með þeim dreifðu kröftum, sem að brauðgerðinni vinna. Eftirtektarvert er það, að brauð munu dýrari hér í Rvík en í sumum öðrum kaupstöðum landsins þó hér muni ekki skorta þau vinnubrögð, er tilheyra hinni frjálsu samkeppni. Sömuleiðis er mjólkurverð afar hátt. Hér í Rvík kostar mjólkin 44 aura lítrinn, þó framleiðendurnir fái ekki meira en 20 aura fyrir lítra, með því að breyta henni í smjör, skyr og osta. Hér er óreiða, sem þarf að lagfæra. Ég efast ekki um, að sveitarfélögin geti kippt þessu í lag (ég á hér við kauptúnin). Það er og næsta óeðlilegt, að vörutegund, sem fæst rétt við landsteinana, skuli kosta meira hér en framleiðendurnir fá fyrir hana á erlendum markaði, eins og ég hefi áður bent á um fiskinn. Ég ætla að nefna sem dæmi upp á skipulagsleysið, sem ríkir við sölu þessara vörutegunda, að nú eru í Rvík einni saman um 80 mjólkursölubúðir. Hvað skyldi sölukostnaður mjólkur verða miklu minni ef þeim væri fækkað þannig, að enginn væri óþörf?
Þessar þrjár vörutegundir, sem ég hefi minnzt á, eru vitanlega þær vörutegundir, sem almenningur notar mjög mikið. Þó má telja fleira, sem er svo að segja jafnnauðsynlegt. Skal ég í því sambandi nefna kol, sement og trjávið. Hér í frv. hefi ég að vísu nefnt salt, en það er ekki eins mikið notað og kol eða byggingarefni. Yfirleitt má gera ráð fyrir, að bæjar- og sveitarfélög reyndu að sjá fyrir þessum vörum sem beztum og ódýrustum, og gættu þess einnig að hafa alltaf nægilegt fyrirliggjandi á markaðinum.
Ég skal nú ekki fara fleiri orðum um þann hluta frv., sem er nýr. Hér á þingi árið 1929 urðu nokkrar umr. um þá einkasöluhugmynd, sem kemur fram í þessu frv. og miðuð er við siglingateppu af völdum hafíss eða annars, og hefi ég í því sambandi fá ný rök fram að færa með frv., þó ég láti nokkur orð fylgja til áréttingar.
Það er ekki úr vegi að geta þess, að síðan þetta frv. lá hér fyrir 1929 hafa komið fram raddir í líka átt og rök mín hnigu þá. A. m. k. mun ýmsum góðum mönnum og gegnum orðið ljóst, hversu slæmt ástandið er orðið innan verzlunarinnar. Og allt fyrirkomulag byggist á því, að engin teppa verði á samgöngunum — að skip komi mánaðarlega — og enginn forði er til fyrirliggjandi, þó um ísahættu sé að ræða. Menn hafa ekkert öryggi gegn þessari yfirvofandi hættu, a. m. k. ekki á Norðurlandi, meðan skipulag verzlunarinnar er svona. Og í þessari hv. deild hafa komið raddir frá 2 ráðherrastólum, sem látið hafa svo um mælt, að Norðurlandi stafaði mikil hætta af ísum, og geti slíkt jafnvel haft hungur í för með sér.
Þessir ráðherrar, sem ég ætla að minna á umr. eftir, könnuðust við, að afarmikil hætta gæti verið á siglingateppu við Norðurland. Er rætt var um ástæðuna fyrir því, að stj. skipti sér af deilunum milli sjómannafél. Rvíkur og Eimskipafél. Íslands árið 1929, en það var undir umr. um dýrtíðaruppbót embættismanna ríkisins hér í deildinni, þá hafði hæstv. fjmrh. þau ummæli um ástæðuna fyrir því, að stj. tók í taumana, sem hér segir: „Það er enginn maður bær um að stöðva samgöngurnar við Norðurland þegar það er bjargarlaust, en hafís getur lokað siglingarleiðunum“, og er ég samþykkur ráðh. í því, að fyrirhyggjulaust var af Eimskipafél. að ætla að stöðva samgöngur við Norðurland í byrjun árs 1929, því ef hafís hefði þá stöðvað siglingarnar, var landið efalaust í mikilli hættu.
Við 2. umr. sama máls sagði hæstv. forsrh., að vegna yfirvofandi matvælaskorts á Norðurlandi hafi hann tekin þátt í að leiða til lykta deiluna milli Sjómannafél. og Eimskipafél., og áleit, að svo mikil hætta hefði stafað af siglingateppu, að ríkisstj. hefði átt að taka til sinna ráða.
Það er öllum ljóst, að þótt siglingateppa í byrjun ársins 1929 hafi átt sér stað af því að stj. Eimskipafél. vildi ekki láta skipin sigla, þá er víst, að hafísinn hafði eins mikil völd og stj. Eimskipafél. til að taka fyrir siglingar, engin máttarvöld geta afstýrt því, ekki stjórn Eimskipafélagsins frekar en aðrir.
Ég býst ekki við að þurfa að tala um, að hætt sé við, að hafís geti lokað siglingaleiðum við Norðurland og víðar, en þó vil ég minna á dæmi, þó langt sé síðan, að í lok 17. aldar lukti hafís næstum allt Ísland. Lagðist hafís þá að Norðurlandi og Austurlandi og að sunnan fór hann fyrir Reykjanes seint í apríl og lá í Faxaflóa fram í vertíðarlok, og þá var hægt að ganga á ís frá Akranesi til Rvíkur um krossmessu, segir í Ísl. annálum. Að norðan komst ísinn vestur fyrir Látrabjarg, svo Breiðafjörður var einn að nokkru leyti íslaus. Eldri menn muna ísaárin 1880–88. Þá var hafís við Norðurland næstum á hverju ári. Þá tók þjóðin hallærislán í landssjóði um 90 þús. kr., og myndi sennilega skipta milljónum nú, sem þjóðin þyrfti að taka að láni, ef eins stæði á og þá. Þá naut þjóðin styrks frá útlendum þjóðum, um 1/2 millj. kr., og á þeim árum flúðu um 2 þús. Íslendingar til Vesturheims.
Hvar ættum við að taka lán nú, ef önnur eins ár kæmu og 1880–88, og hvert ættum við að flýja, eins og forfeður vorir þurftu að gera á þessum árum? Þó okkur gæti vitanlega hent það, að lenda í slíkum ísárum og kreppu og 1880–88, og ekki sé fullkomin lausn í frv. mínu, en ég hefi hugsað mér með frv. að fluttur væri inn forði á haustin, er nægði um vetrartímann, þá er það leið til að forðast íshættuna að nokkru a. m. k. um það leyti árs, er íshættan væri mest.
Ég hefi gert ráð fyrir, að tekin væri upp sú aðferð, að fluttar væru á haustin inn vörur, er nægðu fram á vor, ég tel meiri hættu nú, að fólk líði harðrétti af siglingateppu en fyrir síðustu aldamót, því nú er byggt meira á stöðugum ferðum frá útlöndum en þá. Það er hér um bil víst, að þó við fengjum aðeins kafla úr ári siglingateppu, þá færi svo, að þær verzlanir, sem hefðu litlar birgðir, myndu þrjóta að vistum á svipstundu, og þau heimili, sem sækja allar nauðsynjar sínar í verzlanirnar næstum daglega, eins og títt er orðið í kaupstöðum og kauptúnum, yrðu bjargarlaus á sama tíma. Af þessu leiðir, að almennur skortur verður á brýnum nauðsynjavörum, sem sóttar eru til útlanda ef teppa yrði á í siglingum. Það getur farið svo, að teppa verði á siglingum í hálft ár, og er þá um mjög alvarlegar afleiðingar að ræða.
Ég lýsi ekki frekar þeim afleiðingum, og af því ég ræddi um þetta mál 1929, þá fjölyrði ég ekki meira um það að sinni. Ég vil svo óska þess, að frv. verði vísað til allshn., að umr. lokinni.