13.04.1931
Efri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1308 í C-deild Alþingistíðinda. (1806)
249. mál, merking á útfluttum saltfiski
Jón Þorláksson:
Ég sakna þess mjög, að n. hefir ekki leitað álits yfirfiskimatsmanna, sérstaklega hér í Rvík. Hv. flm. sagði, að frv. væri samið af manni, sem væri vanur að fast við merkingu og útflutning á fiski. Ég fyrir mitt leyti er ekki um það fær að dæma um, hvort þetta merkjakerfi er hentugt, en hefði gjarnan viljað hafa um það umsögn þeirra manna, sem vegna embættisstöðu sinnar eiga fyrst og fremst um það að fjalla fyrir landsins hönd.
Ég ætla samt að greiða atkv. með frv., en vonast til, að þetta verði upplýst, annaðhvort fyrir 3. umr. eða við meðferð málsins í Nd.