26.03.1931
Efri deild: 34. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1310 í C-deild Alþingistíðinda. (1813)
256. mál, laun embættismanna
Fjmrh. (Einar Árnason):
Ég vil þakka hv. fjhn. fyrir það, að hún hefir orðið við tilmælum mínum um að flytja þetta frv.
Frv. sjálft þarf engra skýringa við; allir dm. kannast við það frá fyrri þingum. Flutningur þess sýnir, að ekkert hefir verið gert í því enn að undirbúa ný launalög. Ég hefi nú gegnum hv., frsm. fengið skilaboð frá n. um, að nauðsynlegt væri að undirbúa þetta mál, svo að það gæti hlotið afgreiðslu 1933. Ég get vitanlega engin loforð gefið um það, þar sem kosningar eru fyrir dyrum, eins og hv. frsm. drap á.
Viðvíkjandi því, að einstakar n. og ýmsir þm. hafi hvatt til að hraða þessu máli, vil ég geta þess, að í fyrra mun ég hafa látið í ljós, að ég sæi mjög mikla agnúa á því að ráða þessu máli til lykta, meðan ekki er fengin lausn á gengismálinu. E. t. v. kann sú lausn að fast á þessu þingi.
Ég vænti þess, að hv. d. taki þessu frv. vel. Ég tel enga ástæðu til að vísa því til n., þar sem það er flutt af n., og legg til, að það gangi til 2. umr. nefndarlaust.