28.03.1931
Efri deild: 36. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1319 í C-deild Alþingistíðinda. (1830)
274. mál, framfærslulög
Jón Jónsson:
Ég álít, að svo mikill lagabálkur sem þessi er, komi of seint fram og ekki sé tími til að afgreiða hann nú. Það eru engin vinnubrögð, að vera að tefja þingið með því að bera fram frv., sem vitanlegt er um, að ekki er hægt að afgreiða á þessu þingi, og sem er svo umfangsmikið, að það krefst rækilegrar athugunar.
Það er líka annað atriði, sem ég álít að mæli á móti því, að frv. sé borið fram nú. Ég veit nefnil. ekki betur en að nefnd sitji nú á rökstólum, sem vinnur að því að undirbúa alþýðutryggingar. Ég býst við því, að þetta vandræðamál yrði leyst að miklu leyti, ef hægt væri að setja 1. um alþýðutryggingar.
Ég skal nú játa, að ég hefi ekki kynnt mér frv. þetta mikið, enda býst ég líka við, að hv. flm. flytji málið aðallega til þess að sýnast, og þeir búist ekki við því, að frv. verði afgr. á þessu þingi.
Aðalbreytingin frá núgildandi lögum, sem farið er fram á í þessu frv., er sú, að gera landið allt að einu framfærsluhéraði. Er það mjög stórt atriði, og má um það deila og færa fyrir því ástæður bæði með og móti. Mér þykir undarlegt, að hv. flm. skuli ekki gera fulla grein fyrir þessari breytingu. Það, sem mér finnst helzt mæla með henni, er það, að framfærslukostnaður sveitarfélaganna mundi þá verða jafnari, en hann er nú mjög misjafn, sem kunnugt er. Aftur á móti mælir það mjög í gegn þessari breytingu, að framfærslukostnaðurinn, sem nú er geysimikill, um 1600 þús. kr., myndi aukast að mun, ef þessi breyt. yrði gerð. Vér vitum, að hin einstöku sveitarfélög beita hinni mestu hagsýni og varfærni í þessum sökum. Ef framfærslukostnaðurinn hinsvegar væri lagður á öll bök landsmanna í einu, myndi minni sparnaðar og hagsýni verða gætt. Þá myndi þessi breyting auka mjög á störf atvinnumálaráðaneytisins. Býst ég helzt við, að stofna þyrfti sérstaka deild innan þess til að annast um þessi mál. Yrði því mikill kostnaður að þessari breytingu.
Ekki er hægt að segja, að frágangur frv. sé góður. Í 20. gr. er gert ráð fyrir því, að landið verði allt eitt framfærsluhérað. En í 46. gr. stendur þessi klausa:
„Ef framfærsluþurfi fer eftir læknisráði í sjúkrahús, annað en holdsveikraspítala eða geðveikrahæli, þá greiðir dvalarsveit hans 2,5 hluta meðlagskostnaðarins, þar með talin lyf og læknishjálp, þó aldrei yfir 400 kr. á ári. Að öðru leyti greiðist kostnaðurinn úr ríkissjóði, en aldrei nema fyrir 4 sjúklinga á ári úr sama sveitar- eða bæjarfélagi“.
Hér er gert ráð fyrir, að sjúkrakostnaðurinn verði ekki sameiginlegur. Þetta er ósamræmi og sýnir ljóslega, að ekki er vel frá frv. gengið.
Þá vil ég og minna á ákvæði 43. gr. frv. um niðurjöfnun fátækrakostnaðar á sveitarfélögin. Þar segir, að jafna skuli niður kostnaðinum á hverja sveit, að hálfu eftir samanlögðu skattmati fasteigna í sveitinni og að hálfu eftir samanlagðri fjárhæð skuldlausra eigna og tekna af eign og atvinnu í sveitinni. Þetta er nú hægt að kalla gott fyrirkomulag! Að fara að leggja saman tekjur og eignir sveitar, þar sem utansveitarmenn eða félög eiga fasteignirnar, finnst mér líkast því að leggja saman íslenzkar og danskar krónur sem samkynja stærðir. Allt bendir þetta til þess, að það sé ekki hugmynd hv. flm., að frv., gangi fram á þessu þingi.
Í 30. gr. fara hv. flm. fram á, að verkalýðsfélögin skuli ráða kaupgjaldi við vinnu handa þurfalingum. Þykir mér heldur hart, ef á að lögfesta það, að verkalýðsfélögin skuli vera einráð um kaupgjald í landinu. Kemur þessi stefna þó víða fram í þessu frv.
Skal ég svo ekki fjölyrða meir um frv. Mér finnst, að frv. sé ekki svo vel undirbúið sem skyldi, að réttara hefði verið að bíða eftir áliti alþýðutrygginganefndarinnar, og því ekki tímabært að bera frv. fram nú. Frágangur þessa frv. er heldur ekki nærri því svo góður og vandaður sem skyldi.