31.03.1931
Efri deild: 38. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1330 í C-deild Alþingistíðinda. (1838)

295. mál, tannlækningar

Flm. (Jón Jónsson):

Eins og flestum er kunnugt, hafa tannsjúkdómar færzt mjög í vöxt með þjóðinni á síðari árum, og því meiri þörf er nú orðin á tannlæknum en áður og miklu meiri brögð að því, að menn þurfa að fá gervitennur. En það hefir reynzt torvelt fyrir flest héruð að fá þessa lækningu, því að það er ekki nema í þremur stærstu kaupstöðum landsins, sem tannlæknar eru, og engar horfur á því, að útlærðir tannlæknar setjist víða að úti um land. Afleiðingin af þessu er sú, að á stöku stað hafa einstakir menn farið utan til þess að læra tannsmíði, en eftir lögunum frá 1929 hafa þeir því miður ekki rétt til að stunda þetta, því að samkv. þessum lögum hefir enginn rétt til að stunda þetta starf nema útlærðir tannlæknar.

Ástæðan til þess, að ég rak augun í þetta, er sú, að norður í Húnavatnssýslu er stúlka, sem hefir verið ytra og lært tannsmíði til fullnustu. Hér á landi hefir hún lítið eitt stundað þetta starf, og hefir það gefizt mjög vel. Hún hefir nú fengið tilmæli, sérstaklega frá Austfjörðum, að koma þangað og stunda þetta starf. Þessvegna fór hún þess á leit við dómsmálaráðuneytið, að sér yrði leyft að stunda þetta starf. Landlæknir mælti með því, en vegna laganna frá 1929 var ekki hægt að veita leyfið. Þess vegna finnst mér rétt að lina svo á þessum ákvæðum, að leyfa megi einstöku mönnum að stunda tannsmíði í samráði við héraðslækni. Þetta hefir líka tíðkazt ytra, þar sem margir tannlæknar eru, t. d. í Danmörku.

Ég vona því, að hv. d. taki þessu máli vel og leyfi því að ganga til nefndar, sem ætti þá að vera allshn. Ég vil svo að síðustu biðja hv. þdm. að afsaka, að frv. er svo seint fram komið, en það stafar af því, að mér varð það fyrst ljóst nú fyrir nokkrum dögum, að eftir núgildandi lögum er ekki hægt að veita svona leyfi.