07.04.1931
Efri deild: 40. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í C-deild Alþingistíðinda. (1849)
319. mál, opinber greinargerð starfsmanna ríkisins
Flm. (Ingvar Pálmason):
Þetta frv. er fram komið í tilefni af því, að svo sem öllum er kunnugt hefir nú verið reist útvarpsstöð hér á landi, allfullkomin, og eitt af því, sem menn vænta, að hún færi landsmönnum, er ekki sízt meiri fræðsla um þjóðmálin sjálf. Um byggðir landsins er mönnum oft býsna lítið kunnugt um dagskrármálin og þau verk, sem eru í framkvæmd á hverjum tíma. Það stafar ekki af því, að opinberir starfsmenn gefi ekki sínar skýrslur á réttan hátt til viðkomandi yfirvalda, en þær koma seint eða ekki fyrir sjónir almennings og eru ekki aðgengilegar. Þetta frv. gerir embættis- og sýslunarmönnum landsins að skyldu að gefa ekki aðeins þessa skýrslu til yfirboðara sinna, heldur veita landsmönnum kost á að fræðast um störf þeirra, framkvæmdir hinna ýmsu mála og framtíðarfyrirætlanir um þau. Þetta ætti ekki að valda mikilli fyrirhöfn fyrir þessa starfsmenn. Maður getur hugsað sér, að þetta verði aðeins yfirlit um það, sem skýrslan fjallar um, því verður ekki neitað, að í þessu er talsverður fróðleikur fyrir íbúa landsins. Ég þarf ekki að nefna dæmi um slíka starfsmenn. Það má benda á þá mörgu stjóra, sem hér eru nú starfandi og hafa verið um langt skeið, svo sem vegamálastjóra, vitamálastjóra o. s. frv.
Ég veit ekki, hver ástæða mætti vera til þess, að þetta frv. mætti mótspyrnu. Ég get ekki séð annað en að krafan sé í fyllsta máta sanngjörn, og kostnaður af þessu getur aldrei orðið svo mikill, að það gefi ástæðu til andmæla. Hér er í 3. gr. frv. gert ráð fyrir því, að starfsmenn, sem búa úti um land, verði fengnir til að flytja slík erindi sem þessi í útvarpið. Það mundi að líkum ekki verða oft, en gæti þó komið fyrir, að það þætti nauðsynlegt. En þá er vitanlega ekki rétt, að starfsmaðurinn þurfi að greiða ferðakostnað úr eigin vasa, og því gerir frv. ráð fyrir, að hann fái greiddan ferðakostnað úr ríkissjóði samkv. reikningi, er atvmrh. úrskurðar. En þetta verður svo sjaldan, að það getur aldrei bakað mikil útgjöld.
Ég sé ekki ástæðu til að eyða fleiri orðum að því, að þessi fróðleikur verði landsbúum nokkuð uppbyggilegri en dansmúsíkin, sem nú er þó talið nauðsynlegt að útvarpa. Og því vil ég vona, að hv. d. lofi frv. ekki aðeins að ganga til n., heldur láti það ganga fram. Ég legg til, að frv. verði vísað til allshn. að lokinni umræðu. Það gæti líka komið til mála að vísa því til menntmn., og læt ég hv. d. ráða því, þó að ég geri hitt að tillögu minni.