11.04.1931
Efri deild: 44. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1340 í C-deild Alþingistíðinda. (1859)

334. mál, innheimta skulda

Flm. (Jón Þorláksson):

Þó að ég sé flm. þessa frv., þá er ég ekki höfundur þess, eins og grg. ber vitni um. En ég hefi tekið að mér að koma því á þing fyrir þá, sem gengizt hafa fyrir samningu þess. Frv. fer fram á að gera innheimtu óvéfengdra skulda einfaldari og kostnaðarminni en nú er. Og hafa ákvæði um þetta í frv. verið sniðin að miklu leyti eftir útlendum, aðallega þýzkum fyrirmyndum. Ég skal taka fram, að ég er ekki sérstaklega kunnugur því sviði réttarfarsins, sem frv. grípur inn á, og vil því engan veginn, þó að ég sé flm. frv., taka ábyrgð á því, að sú leið, sem frv. gerir ráð fyrir, falli að öllu leyti við þá réttarfarslöggjöf, sem við höfum nú. Þetta frv. er tilraun til bóta á þessum göllum réttarfarslöggjafarinnar á tilteknu sviði. Og má vænta þess, eins og alltaf, þegar sett er ný bót á gamalt fat, að það geti þótt sem einhver missmíði verði eftir. Ég vil ekki fara lengra út í umr. um þetta að sinni, en vil leyfa mér að óska eftir því, að frv. verði að loknum umr. vísað til allshn. Ég taldi rétt að greiða fyrir frv., til þess að það gæti komizt til athugunar á þessu þingi, þó að það bærist mér svo seint í hendur; en ég get naumast búizt við að fá fullnaðarafgreiðslu á því.