13.04.1931
Efri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 1346 í C-deild Alþingistíðinda. (1873)

356. mál, einkasöluheimild á steinolíu

Flm. (Jón Baldvinsson):

Á undanförnum þingum hafa verið fluttar þáltill., þar sem hefir verið skorað á stj. að nota sér heimild um einkasölu á steinolíu skv. lögum nr. 77 1917. Þessi lög voru sett eftir allmikið þjark á sínum tíma, eftir að landsmenn höfðu séð, hve herfilega þeir höfðu verið flegnir af því olíufélagi, sem hér hafði haft tögl og hagldir. Reynslan hafði og sýnt á stríðstímunum, að kaupmennirnir, bjargvættir þjóðarinnar, höfðu ekki reynzt einhlítir á þessu sviði fremur en öðrum.

Heimild þessi var þó ekki notuð fyrr en í byrjun ársins 1923. Stóð einkasalan fram til 1925, en þá var hún lögð niður fyrir tilstilli íhaldsmanna. Þó að deilt væri um olíuverzlunina á sínum tíma, þá var þó víst, að hún naut vinsælda útvegsmanna, enda fundu þeir bezt muninn frá því, sem áður var.

Landsverzluninni tókst að lækka olíuverðið allverulega. Hún tók upp þá nýbreytni að flytja hingað steinolíu í stáltunnum. Áður var öll olía flutt hingað í trétunnum og ódrýgðist við það að stór miklum mun, jafnvel eftir því sem sagt hefir verið, að einum fjórða hluta, en landsmenn urðu að borga brúsann. Þessar framfarir voru mikils virði út af fyrir sig. En þrátt fyrir það, þótt hinir smærri útvegsmenn fylktu sér utan um olíuverzlunina meðan hún var í höndum ríkisins, var hún þó lögð niður vegna fárra manna, sem höfðu umboð fyrir steinolíufelög.

Við jafnaðarmenn höfum flutt þáltill. í 3 ár um að taka einkasöluna upp aftur. Margir framsóknarmenn hafa og verið þessu hlynntir, og einn ráðh. þess flokks, Magnús heit. Kristjánsson, var jafnan ákveðinn fylgismaður einkasölunnar.

Tillögur okkar jafnaðarmanna hafa verið felldar. Ýmsu hefir verið borið við, og sumt af því hefir haft við rök að styðjast. M. a. hefir verið sagt, að nú væri svo breytt um fyrirkomulag á olíusölunni, þar sem nú væru hér komnir olíutankar, að ekki væri hægt að nota heimildina. Þetta hefir við rök að styðjast, og til að bæta úr þessu, höfum við hv. þm. Ak. flutt frv. á þskj. 356, þess efnis, að bætt sé inn í heimildina ákvæði um, að taka megi olíugeyma eignarnámi af steinolíufélögunum. Það er ekki hægt að ganga framhjá því, að óhugsandi er, að ríkið geti samþ. að taka að sér einkasölu á steinolíu, án þess að gera um leið ráðstafanir, sem yrðu þess valdandi, að þeim olíufélögum, sem hér eiga stöðvar, sé gefinn þess kostur að koma þeim í peninga. Enda getur það vel hugsast, að landsmönnum sé full þörf á því að eignast 2 stærstu stöðvarnar, sem hér eru nú. Ég fyrir mitt leyti tel því ekki neitt til fyrirstöðu, að ríkið annaðhvort kaupi eða leigi þær stöðvar.

Þá er ekki hægt að sjá annað en að farið verði að nota olíuvélar í skip í framtíðinni, svo þar kemur allmikil aukin sala á olíu; auk þess eru hér nú eitthvað 1000 mótorbátar, og allir vita, að þeir nota mikla olíu, enda ekkert útlit fyrir, að þeir verði lagðir niður eða þeim fækkað.

Þá má og telja bíla. Þeir nota sem kunnugt er mikið af bensíni, en í frv. er einnig gert ráð fyrir einkasölu á því. Það má telja líklegt, að bílar verði mjög tengdir við framtíðarsamgöngur á landi hér.

Eignir steinolíufel. og það, sem bundið er í þessari verzlun, skiptir millj. kr. Ég skal ekki að svo stöddu fullyrða, hve mikið það er, en ég veit, að það eru margar millj. kr. Og þó um margar millj. sé að að ræða, þá hika ég ekki við að bera fram frv. um þetta og greiða því atkv. Ég hika ekki við þetta, þar eð ég vil, að landsmenn fái olíu með sannvirði á hverjum stað og tíma. Enda er þetta, eins og öllum er kunnugt, afarmikið atriði fyrir sjávarútveginn og samgöngur á landi.

Hjá olíufel. er engin samkeppni. Ef eitt þeirra breytir verði, þá breyta hin því líka, samtímis og jafnmikið. Ef ekki er tekin upp einkasala, þá verður hér á engin breyting. Ég er ekki að halda því fram, að steinolíukaupmenn séu verri en aðrir menn, en þeir hafa réttinn og nota sér hann auðvitað eins ítarlega og þeir geta og þora.

Mörg lönd stynja undir þessari sömu byrði. Það eru og fleiri lönd en Ísland, sem reynt hafa að koma upp einkasölu á steinolíu, og losna undan oki olíuhringanna. Þjóðverjar ætluðu um skeið að taka einkasölu á steinolíu, en þá voru þeir sigruð þjóð, en olíufélögin svo sterk þar í landi, að ekkert varð úr því.

Hér virðist olíusala vera mjög arðberandi fyrirtæki, og ríkinu ætti ekki að veitast erfiðara að veita sölunni forstöðu en félögunum, og ég sé ekki, að olíuhringar heimsins hafi hér nein þau völd, að þeir geti kúgað okkur.

Hvernig sem þessu er velt fyrir sér, þá býst ég við, að allir viðurkenni nauðsyn þess að hafa hönd í bagga um verðlag þessarar nauðsynjavöru. Og ég sé ekki neitt annað ráð þar til en að ríkið taki einkasölu á olíu í sínar hendur.

Þetta mál er nú að vísu orðið þaulrætt þing eftir þing, en ég vona samt, að hv. d. láti rannsaka það í nefnd. Ég veit ekki gerla, hvar það á bezt heima. Það er sjávarútvegsmál, samgöngumál og fjárhagsatriði. En af því að mig minnir, að það hafi áður legið fyrir sjútvn. þingsins, þá vildi ég mælast til, að því yrði vísað þangað að lokinni þessari umr.