07.03.1931
Neðri deild: 18. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 802 í C-deild Alþingistíðinda. (1896)
91. mál, sveitargjöld
Flm. (Halldór Stefánsson):
Ég sé, að umræðutími er að þrotum kominn, og mun því takmarka mál mitt og ekki fara langt út í einstök ágreiningsatriði, enda á það ekki við við 1. umr.
Ég vil benda hv. þm. á það, að þótt þeir álíti þessar reglur ekki sem heppilegastar, þá verður ekki hjá því komizt — að — mínum dómi — að ráða bót á þeim misfellum, sem eru á tekjuöflun bæja- og sveita og gefa þeim einhverja fasta tekjustofna almennara en nú er. Mér þykir það lýsa helzt til miklu vantrausti á þeim reglum, sem tekju- og eignarskattslögin setja um öflun fjár í ríkissjóð af hinum sameiginlega skattstofni hans og sveitarfélaganna, ef þær reglur eiga að vera óhæfilegur grundvöllur undir tekjuöflun sveitar- og bæjarfélaga. Ber þess þó að gæta, að reglurnar um tekju- og eignarskatt eru settar af sjálfu þinginu eftir nákvæman undirbúning og íhugun, og það kemur því úr hörðustu átt, þegar þm. verða til þess að fordæma þær reglur, sem þeir sjálfir hafa sett. Og mér þykir það kynlega við bregða, ef t. d. hv. þm. Ísaf. telur þær hinar sömu reglur of lágar, þegar um tekjuheimtun ríkisins er að ræða, en of háar, ef um tekjuöflun bæjar- og sveitarfélaga er að ræða. Það, sem fyrir mér vakti með flutningi þessa frv., var fyrst og fremst það, að gera tilraun til þess að knýja fram umbætur á þessum sviðum, og kemur nú til kasta þingsins að taka afstöðu til þess. Og þó að flutningur frv. yrði ekki til annars en að koma umbótum Í þessum efnum á nokkurn rekspöl, þá tel ég, að nokkuð hafi unnizt, hversu sem fer um þetta frv.
Ég geri ráð fyrir, að frv. verði látið ganga til n., og get ég því sparað mér fleiri orð að þessu sinni.