09.03.1931
Neðri deild: 19. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í C-deild Alþingistíðinda. (1900)

92. mál, erfðaleigulönd

Flm. (Jörundur Brynjólfsson):

Ég býst ekki við að fylgja þessu frv. úr garði með mörgum orðum að þessu sinni. Frv. er samið af mþn. í landbúnaðarmálum. Einn nm., Þórarinn á Hjaltabakka, hefir þó ekki enn getað látið álit sitt í ljós um frv. En aths. hans, ef einhverjar verða, munu koma mjög bráðlega og verður þeim þá komið til landbn., sem væntanlega fær þetta mál til meðferðar.

Eins og menn þekkja til, eru mjög mismunandi aðferðir um meðferð landa í nánd við kaupstaði og þorp hér á landi. Það er vitanlegt, að íbúar kaupstaða og þorpa hafa mikla þörf til landa og landsnytja. Löndin eru oftast eign einstakra manna, og það gengur ekki ætíð sem greiðlegast að fá þau til afnota fyrir kaupstaðarbúa. Hefir það ekki alllítil áhrif á afkomu manna, hversu þeim málum er háttað. Er víða mjög erfitt að fá löndin til ræktunar og leiguskilmálarnir erfiðir, þó undantekningar séu. Löndin eru leigð á mismunandi hátt; sumstaðar aðeins til fárra ára, en annarsstaðar lengur. Leigan er einnig mjög mismunandi og viða mjög ósanngjörn. Er hún sumstaðar svo há, að það þarf 1/3–1/4 hl. afrakstrar af landinu til að greiða hana, þó um óræktað land sé að ræða. Af þessu hefir leitt, að land hefir verið miklu minna ræktað umhverfis kaupstaðina en ella mundi. Tilgangurinn með þessu frv. mþn. er að ráða bót í þessu efni og stuðla til þess, að þar, sem þörf er fyrir landið, fáist það með aðgengilegum skilmálum. Undanfarið hafa hvaðanæva borizt kvartanir um það, að erfitt sé að fá lönd til ræktunar við kaupstaðina, en þar sem engin lög hafa verið fyrir hendi um þetta efni, hefir litlu verið hægt um að þoka. Þar sem lönd hafa verið fáanleg með sæmilegum kjörum í grennd við kaupstaði, hefir það sýnt sig, að ræktun hefir aukizt mjög skjótt. Má t. d. nefna Vestmannaeyjar og Hornafjörð, eins og getið er í grg. Þar gefur að lita blómlega reiti, sem áður voru óræktarmóar. Þannig mundi víðar verða, jafngóð skilyrði væru fyrir hendi.

Ég vonast til þess, ef frv. þetta verður að lögum, að íbúar kaupstaða og þorpa geti fengið land til ræktunar. Mundi ræktunin taka hröðum framförum til aukinnar velmegunar fyrir hlutaðeigendur. Hinsvegar mun ekki hallað rétti landeigenda, þó frv. þetta nái fram að ganga.

Okkur flm. þessa frv. eru kærkomnar bendingar í þessu efni frá þeirri n., sem væntanlega fær það til meðferðar, og öðrum. Við samning frv. höfum við notið mikilsverðra bendinga frá búnaðarmálastjóra Sigurði Sigurðssyni.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um frv. Vænti ég að hv. d. taki því vel og legg til, að málinu verði vísað til hv. landbn. og 2. umr.