09.03.1931
Neðri deild: 19. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í C-deild Alþingistíðinda. (1911)

93. mál, verslunarnám og atvinnuréttindi verslunarmanna

Flm. (Jón Ólafsson):

Eins og grg. frv. sýnir, er það samið af Verzlunarmannafélaginu Merkúr og Verzlunarmannafél. Rvíkur, í samráði við Verzlunarráðið og Verzlunarmannasamband Íslands. Má því gera ráð fyrir, að málið sé vel undirbúið, og þótt við flm. höfum allir óbundnar hendur um að flytja við frv. þær brtt., sem okkur sýnist, þótti okkur engu að síður sjálfsagt að taka að okkur að flytja það. Verzlunarstéttin hefir lengi haft þessi mál á döfinni, og um þau hefir staðið talsverður styrr innan hennar, en nú virðist samkomulag hafa náðst að mestu leyti. Það er nú svo, að stéttaskiptingin í atvinnuvegunum er ávallt að verða gleggri og gleggri. Skal ég ekki um það segja, hve heppilegt það er að loka að miklu leyti sumum atvinnugreinum fyrir mönnum af því að þeir eru ekki fagmenn, en stefnan gengur nú í þessa átt. Hér hefir verið samin löggjöf um iðju og iðnað, og því varla hægt að neita verzlunarstéttinni um nokkra vernd gegn því, að allir geti vaðið inn á svið hennar. Núgildandi lög um þetta efni eru frá 1909 og eru því orðin úrelt í mörgum greinum, og á þeim tíma, sem síðan er liðinn, hefir alstaðar verið krafizt meiri þekkingar af verzlunarmönnum.

Nú er hér á leiðinni gegnum þingið frv. um bókhald, sem gerir marga bókhaldsskylda, sem áður voru það ekki, og af því hlýtur að leiða auknar kröfur til þekkingar. Hinsvegar álít ég, að of langt megi ganga í því að útiloka menn frá verzlunarstarfinu, og geri ég því ráð fyrir, að frv. taki allmiklum breyt. í meðförunum. Vænti ég, að því verði vísað til 2. umr og allshn.