09.03.1931
Neðri deild: 19. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í C-deild Alþingistíðinda. (1918)
94. mál, sauðfjármörk
Pétur Ottesen:
Ég frétti það rétt áður en ég fór að halda þingmálafundina, að von væri á frv. um sauðfjármörk frá stj. Vissi ég ekki gerla um form þess og innihald og gat því ekki skýrt kjósendum frá því. Hinsvegar var mér kunnugt um það, að ýmsar till. höfðu verið uppi á undanförnum árum um þetta mál. T. d. gekk ein till. í þá átt, að ákveða sérstakt yfirmark fyrir hverja sýslu, eða jafnvel hvern hrepp. Á fundum var samþ. að skora á þingið að breyta þessum lögum ekki nema í samráði við sýslunefndir landsins. Afleiðingin hefði orðið sú, að fjöldi manna hefði orðið að leggja niður mörk sín. Í þessu frv. er þó ekki farið inn á þá braut að fella mörkin niður. Nú stendur svo á, að heimild vantar til þess að ákveða um eignarréttinn, ef á milli ber um eitthvert mark, t. d. sammerkt eða námerkt. Ég vil nú benda hv. dm. á, hvort þetta mál sé ekki betur leyst með því að skipa markadóm, sem svo gilti fyrir þau svæði, þar sem um samgang sauðfjár er að ræða. Finnst mér þetta vera heppilegra en það, sem bent er á í þessu frv., sem sé, að hafa þriggja manna dóm — einn fyrir allt landið —, sem eigi sæti í Rvík. Þetta hlýtur alltaf að vera þyngra í vöfum og óþægilegra en að hafa fleiri markadóma. Því stundum gæti orðið tafsamt að ná til þessa markadóms í Rvík fyrir þá, sem búa á hinum fjarlægustu stöðum. Auðvitað er það mikilsvert atriði, að glöggir menn og áhugasamir í þessu efni séu valdir í þessa stöðu. Og er ég þess fullviss, að úti um sveitir landsins myndu menn verða valdir með sérstöku tilliti til þess. Skal ég í þessu sambandi geta upplýsinga, er ég fékk hjá hv. þm. S.-Þ. um markadóm, er Suður-Þingeyingar og Eyfirðingar höfðu, og hefir þeim tekizt allvel að útrýma sammerkingum. Virðist það að þeirra dómi heppilegri lausn á málinu en að sækja allt til þessa eina markadóms í Rvík. Vil ég skjóta því til landbn., hvort hún sjái sér ekki fært, ef til kemur, að greiða úr málinu á þann hátt, sem ég hefi hér gert ráð fyrir.
Þeir menn, sem starfa að opinberum málum í sveitum og héruðum, hafa að jafnaði litla eða enga borgun fyrir verk sín, en hér er gert ráð fyrir föstum hálaunuðum embættum. Hv. þm. V.-Húnv. hefir bent á, að gert sé ráð fyrir, að menn greiði meira fé fyrir prentun marka samkv. frv. en nú á sér stað, jafnvel helmingi meira, miðað við Húnavatnssýslu. Þykir mér það sennilegt, eftir því sem er í Borgarfjarðarsýslu. Er gert ráð fyrir 2 kr. gjaldi, sem getur þó hækkað upp í 5 eða jafnvel 10 kr. Auk þess er sérstakt gjald fyrir að prenta brennimörk, 50 aurar fyrir markið.
Vil ég svo biðja landbn. að athuga, hvort ekki sé hægt að koma upp markadómum fyrir þau héruð, þar sem um mikinn samgang fjár er að ræða.
Hv. þm. V.-Húnv. hefir nú að gefnu tilefni svarað hv. flm. svo rækilega, að ég sé ekki ástæðu til að gera það frekar í þetta skipti. Þó get ég ekki stillt mig um að minnast á orð hans, er hann var að tala um kostnaðarhliðina. Hann sagði, að kostnaðurinn skipti sig engu máli. Það vil ég segja, að þessa hugsunarháttar hefir gætt of mikið í fjármálastjórn þessa lands upp á síðkastið. En mér finnst, að þegar svona hugsunarháttur skýtur upp kollinum, þá megi maður ekki láta neitt tækifæri ónotað til þess að fordæma hann á allan hátt og reyna að kveða hann niður. Á því byggist framtíð þjóðarinnar.