17.03.1931
Neðri deild: 26. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 832 í C-deild Alþingistíðinda. (1931)
95. mál, sjóveita í Vestmannaeyjum
Jóhann Jósefsson:
Ég finn ástæðu til að þakka hv. allshn. fyrir það, hversu liðlega hún hefir tekið í þetta mál. Enda virðist hún hafa fullan skilning á því, að hér er að ræða um mjög þýðingarmikið atriði. Og það er áreiðanlegt, að komist sjóveitan á, eins og nú er fyrirhugað, er með því séð fyrir því, að fiskverkun í Vestmannaeyjum verði betri en hún hefir verið yfirleitt. Því verður ekki neitað, að vöntun á þvottavatni hefir bagað verkunina þar í ýmsum atriðum. Hinsvegar er fiskur, sem veiðist þar, mjög góð verzlunarvara sökum stærðar, og er hann eftirsóttur af kaupendum bæði á Spáni og í Portúgal.
Brtt. n. tel ég allar til bóta, sérstaklega brtt. við 3. gr. Ég býst við, að það ákvæði hafi fremur fallið niður af vangá en að það hafi verið tilætlunin að sleppa því, að atvmrh. legði samþ. sitt á gjaldskrána. Venjulega hafa slíkar skrár verið samþykktar af því ráðuneyti, hvort sem er.
Aðrar brtt. skal ég ekki fjölyrða um. Þær eru a. m. k. ekki til miska, og yfirleitt bæta þær frv. Ég lýsi þess vegna yfir því, að ég mun greiða þeim atkv., um leið og ég þakka hv. n. fljóta afgreiðslu málsins.