10.03.1931
Neðri deild: 20. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 834 í C-deild Alþingistíðinda. (1941)

96. mál, hafnarlög

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Það er hið sama að segja um þetta frv. og hið næsta á undan (frv. um sjóveitu í Vestmannaeyjum), að það er lagt fyrir Alþingi eftir tilmælum bæjarstjórnar Vestmannaeyja. Bæjarstjórnin fer fram á, að lögfest sé, að festargjöld og önnur gjöld til hafnarinnar af bátum gangi fyrir öllum veðum samhliða vita- og lestagjaldi til ríkissjóðs, sem sagt gerð hliðstæð opinberum gjöldum til ríkissjóðs. Þessi gjöld eru í Vestmannaeyjum margfalt hærri en annarsstaðar, vegna þess hve hafnarmannvirki hafa orðið þar dýr. Innheimta er því örðug, enda verður hver bátur að greiða mörg hundruð krónur í slík gjöld árlega. Ekki koma þessir örðugleikar sízt fram í illu ári, enda munar miklu, hvort gjöldin nema nokkrum hundruðum eða nokkrum tugum króna, eins og víðast annarsstaðar.

Legg ég til, að málinu verði vísað til 2. umr. og sjútvn. að þessari umr. lokinni.