10.03.1931
Neðri deild: 20. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 836 í C-deild Alþingistíðinda. (1947)
104. mál, raforkuvirki
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ég skal ekkert um það deila við hv. þm. N.- Ísf., hvort félagið hafi tekið óhæfilegan arð allt frá byrjun. Það getur verið, að hann hafi til uppjafnaðar ekki verið nema sem svarar vöxtum. Um það er mér ekki kunnugt. En í bréfinu frá bæjarfógetanum á Ísafirði er það skýrt tekið fram, að 1927–1928 greiddi félagið 10% til hluthafa og árið eftir 25%, og á síðasta ári er mér sagt af kunnugum mönnum, að arðurinn hafi orðið um 33%. Það er því enginn minnsti vafi á því, að allt af síðan 1927 hlýtur félagið að hafa skammtað sér óhæfilega mikla álagningu á rafmagnið, sem það seldi.
Annars er hér ekki aðeins um þetta einstaka dæmi að ræða, heldur hitt, hvort rétt er að láta slík félög hafa þá aðstöðu, að geta okrað á rafmagnsnotendum eftir vild og geðþótta.
Að því er snertir rafmagnsverð á Ísafirði og annarsstaðar vil ég geta þess, að í áðurnefndu bréfi, sem ritað er í ársbyrjun 1930, er sagt, að verðið sé 1.20 kr. á Ísafirði, en frá mótorstöð í Hafnarfirði 0,84 kr. fyrir kílowattstund til ljósa, og 0.50 kr. til iðnaðar. Ég hefi engan heyrt vefengja, að þessar tölur séu réttar. Hitt efa ég ekki, að á einstökum stöðum í landinu sé rafmagnið selt dýrara.
Enn er eitt atriði í þessu sambandi, sem ég vil geta um. Þegar samningar voru gerðir við félagið, var svo ákveðið, að bæjarstj. skyldi fá rafmagn til þarfa bæjarins, svo sem til götuljósa, sama verði og hluthafar. Þetta áttu að vera sérstök fríðindi fyrir bæjarstj., en það hefir reynzt allt annað. Verðið hefir að vísu verið það sama, en þó hafa hluthafar raunverulega fengið rafmagnið fyrir lægra verð, þar sem þeir fá arð. Bæjarsjóður greiðir árlega stórfé til félagsins fyrir rafmagn, en fær hvorki arð né ívilnun.
Þessa stöð á Ísafirði nefndi ég aðeins sem dæmi þess, hvernig farið getur, ef ekki eru til lög um þetta efni.