13.03.1931
Neðri deild: 23. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í C-deild Alþingistíðinda. (1969)

117. mál, útsvör

Pétur Ottesen:

Ég vil út af ummælum hv. 2. þm. Eyf. benda á það, að eftir hans hugsun ættu menn, sem eiga jörð í einhverjum hreppi og hafa af henni engin not, samt sem áður að borga til sveitarþarfa af þessari óarðberandi eign.

Hitt dæmið, sem hv. þm. nefndi, var það, að einstakir hreppar eignuðust jarðir, sem þeir létu þurfamenn nytja. Þetta er ómögulegt að útiloka. En hv. 2. þm. Eyf. flutti einu sinni frv. um byggðarleyfi. Í því voru ákvæði, sem gátu komið að haldi í þessu efni; en hv. þm. hefir gersamlega heykzt á því máli og ekki hreyft því aftur. Ef hann hefir manndóm til þess að reyna að fyrirbyggja þennan háska, komi hann þá með sitt frv., en sé ekki að benda á útsvarslögin, því að þangað er ekki neitt að sækja í þessu efni.

Ég vil benda á, að hér er verið að stíga inn á nýja braut í útsvarslöggjöfinni, — og hvert getur þetta leitt? Ætli næsta sporið verði ekki það, að þeir landsmenn, sem eiga fé hér í bönkunum, verði skyldaðir til þess að greiða af því útsvar hér í Reykjavík?

Menn verða að athuga, að ef gengið er inn á þessa braut, er óvist, hvar verður látið staðar numið. Menn verða að gera sér ljóst, hverjar afleiðingarnar verða.