14.03.1931
Neðri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í C-deild Alþingistíðinda. (1982)

121. mál, nýjar veiðiaðferðir og veiðarfæri

Ólafur Thors:

Það er satt, að þetta er ekkert stórmál. Það má víst um það segja, að það sé bæði meinlaust og gagnslaust. Mér þykir líklegt, að slíkar tilraunir, sem hér er gert ráð fyrir, megi láta varðskipin — eða eitthvert þeirra — framkvæma án allrar lagasetningar. Slík rannsókn hefir einmitt verið gerð að umtalsefni í sjútvn. Frv. gerir ráð fyrir 50 þús. kr. til þessarar rannsóknar. Ég verð nú að segja, að það er ekki mikil upphæð, og þykir mér ekki taka að koma með lagafrv. um það. Frv. er að vísu ekki skaðlegt. En það er hlægilegt að bera fram í frv.formi svona smámál.