14.03.1931
Neðri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 853 í C-deild Alþingistíðinda. (1984)

121. mál, nýjar veiðiaðferðir og veiðarfæri

Flm. (Haraldur Guðmundsson):

Það má vera, að hv. 2. þm. G.-K. finnist 50 þús. krónur smápeningar. Það er alkunnugt, að sá hv. þm. lítur ærið stórt á sjálfan sig og sínar framkvæmdir, en finnst flest annað smátt. En þótt fiskveiðafélag það, sem hv. þm. veitir forstöðu, sé stórt, þá veit ég samt ekki til, að það hafi gert neinar tilraunir með veiðarfæri, annað en botnvörpuna. íhaldssemin hjá togarafélögunum er einmitt slík. Eða ef til vill finnst honum ekki taka því að gera neinar tilraunir, sem ekki kosti a. m. k. um 50 millj., eins og hann sagði í ræðu sinni.

Frv. þetta er borið fram með það fyrir augum, að rannsóknir þær, sem þar er gert ráð fyrir, geti komið smærri bátum að notum. En slíkar rannsóknir er naumast hægt að framkvæma, nema undanþága sé veitt frá ákvæðum laga um botnvörpu- og þó einkum um dragnótaveiðar, sem banna notkun ýmsra skyldra veiðarfæra kringum landið. Um mörg slík veiðarfæri getur verið að ræða, sem eru lítt eða ekki þekkt hér. Á Ísafirði hefir t. d. verið reynd varpa til að veiða „rejer“. Sú veiði hefir gefið þá raun, að fengizt hafa upp 20 kg. í einu. Er það dýr vara, ef hægt er að koma henni óskemmdri á markaðinn. Gæti því verið um mikla hagsmuni að ræða, ef sú veiðiaðferð væri upp tekin. — Þessi veiðiaðferð heyrir undir botnvörpulögin og er bönnuð þar, þótt þær litlu tilraunir, sem með þetta hafa verið gerðar á Ísafirði, hafi verið látnar afskiptalausar.

í nágrannalöndunum hafa margar veiðiaðferðir, með ýmsum tegundum neta og nóta, verið tíðkaðar og margar hverjar gefizt vel og reynzt hentugar fyrir smábáta. Ég veit aðeins nöfn á nokkrum þessara veiðarfæra, en lítið um gerð þeirra eða hvernig þau eru notuð. Eins og er, þá brestur alla þekkingu á því, hvort þessi veiðarfæri mundu koma að notum hér. Með fyrirkomulagi því, sem nú er á veiðiskap okkar, fiskverkun og sölu, þá er öllu teflt í ægilegan voða, þegar Spánarmarkaðurinn bregzt, vegna þeirrar einhæfni í verkun og veiði, sem er ríkjandi. Það ríður því á, að geta aflað fjölbreyttari fiskjar og þarf að sníða veiðiaðferðirnar eftir því. Frv. þetta kemur firma hv. þm. (ÓTh) ekkert við. Það er flutt með það fyrir augum að létta undir með bátaútveginum og reyna að skapa honum betri afkomuskilyrði. Í því er alls ekki átt við venjulegar botnvörpuveiðar. 2. gr. er sett fyrir þá sök eina, að ýmsar tegundir veiðarfæra þeirra, sem ég ætlast til, að reyndar verði, falla undir bannið um landhelgisveiðar í botnvörpulögunum og um dragnótaveiðar í landhelgi. Hv. þm. þótti 50 þús. kr. lítil upphæð. En ef vel og skipulega er á þeirri upphæð haldið, þá má vænta talsverðs árangurs. — Annars stendur hv. þm. það vitanlega opið að hækka þá fjárhæð. Hann getur t. d. gert brtt. um, að til þessa verði veittar 100 þús. kr. Ég skal vera með þeirri tillögu. En 50 millj. hefi ég ekki trú á, að þingið geti veitt til þess að svo stöddu.

Viðvíkjandi því, sem hv. 1. þm. S.-M. sagði, þá tel ég, enda þótt hér sé farið fram á fjárveitingu, þá beri þó frekar að láta þetta frv. ganga til sjútvn. en fjhn. Sú n. ætti að hafa betri skilyrði til að dæma um nauðsyn þessa máls. Þangað koma líka form. Fiskifél. Íslands og fiskifræðingurinn, og þeir ættu að vera líklegastir til að gefa n. góðar upplýsingar.