14.03.1931
Neðri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í C-deild Alþingistíðinda. (1986)

121. mál, nýjar veiðiaðferðir og veiðarfæri

Ólafur Thors:

Ég hlýt að hafa hitt á fremur auman blett á hv. flm. Ég sagði ekkert móðgandi, annað en bað, sem satt var, að frv. þetta væri í alla staði lítilfjörlegt eða lítilmótlegt. Það var ekki tilgangur minn að móðga hv. flm. með því, en hann hefir fundið, að ég sagði satt, og tekið sér það nærri.

Hv. flm. má ekki í frv. sínu rugla saman óskyldum málum. Ef hann ætlast til, að þessar tilraunir séu eingöngu gerðar vegna smábátanna, eins og kom fram í ræðu hans, þá ætti fjöru-Þór að geta gert slíkar tilraunir. Honum ætti að vera óhætt við slíkar tilraunir á grunnsævi og í lygnum sjó, þótt aumur sé. Hv. flm. sagði, að ekki væri ætlazt til, að þessar tilraunir væru gerðar vegna togaranna. Sú útgerð hefir heldur engan styrk fengið til þessa. En ég get sagt það, án alls reigings, að togarafélögin hafa gert slíkar tilraunir um á eigin spýtur. Allar umbætur, sem hafa verið gerðar á botnvörpunni, hafa verið reyndar. Og sum útgerðarfélögin hafa kostað miklu fé til þess að reyna ný veiðarfæri, og það án alls styrks.

Ég get tekið undir það með hv. 3. þm. Reykv., að það sé Fiskifélagið, sem á að gangast fyrir því, að slíkar tilraunir, sem frv. gerir ráð fyrir, séu gerðar, ef það er talið þess vert. Og ef einhver alvara vakir fyrir hv. flm. með flutningi þessa frv., þá hefði hann heldur átt að snúa sér beint til Fiskifélagsins með þetta. Þetta frv. er eitt af mörgum, sem hv. þm. Ísaf. hefir lagt fyrir þetta þing. Ég spurði hv. þm. nýlega, hvað fyrir honum vekti með flutningi allra þessara frv. Hvort það væri til þess að koma af sér letiorði, svona fyrir kosningarnar. Þá sæju þó allir, hvað eftir þennan hv. þm. lægi. Hv. þm. svaraði mér þá engu. Hann hefir að vissu leyti gert það nú með því að taka aðfinnslum mínum með slíkum ofsa og ólund. Ég gerði þó ekki annað en skopast að þessu frv.kríli.