14.03.1931
Neðri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 857 í C-deild Alþingistíðinda. (1987)
121. mál, nýjar veiðiaðferðir og veiðarfæri
Flm. (Haraldur Guðmundsson):
Ég skal víkja nokkrum orðum að hv. 3. þm. Reykv. Mér skildist á honum, að hann væri hræddur við, ef frv. verður að l. og farið verður að beita þeim, að þá gangi féð til ónýtra en auragráðugra manna og beri því engan árangur. Vildi hann sanna það með því að segja frá einhverri umsókn, sem komið hefði fyrir fiskiþingið, um styrk til þorskanetaveiða. En ég held, að ástæðulaust sé að bera kvíðboga fyrir slíku. Ríkisstj. myndi veita þennan styrk í samráði við forseta Fiskifélagsins.
Ég get verið sammála hv. 2. þm. G.-K. um það, að rétt sé að nota Þór að nokkru leyti til að framkvæma þessar rannsóknir. En frv. er ekki óþarft fyrir því, vegna þess, að mér finnst orka nokkuð tvímælis um það, hvort rétt sé að gera slíkar rannsóknir fyrir fé landhelgissjóðs. (ÓTh: Það er ekki verra en að nota hann í kosningaleiðangur þinn og hæstv. dómsmrh.!). Jú, jú! Hv. 2. þm. G.-K. langaði nú líka til að vera með í þeirri ferð. Hv. þm. stóð á hafnarbakkanum og mændi á eftir varðskipinu, eins og Ísraelsmenn forðum til fyrirheitna landsins, og bar sig illa. (SE: Hvers vegna fékk hann ekki að fara með?). Ég veit það ekki. Ég var ekki skipherra. En svo mikið er víst, að ég hefi aldrei verið hræddur við þann hv. þm. og þori vel að mæta honum á fundum hvar sem er. — Að ég hafi tekið mér nærri mótmæli hv. þm. gegn þessu frv., er mesta fjarstæða. En þegar hv. þm. setur upp þennan mikla rembingssvip, óðara en minnzt er á sjávarútvegsmál, þá neita ég ekki því, að það „irriterar“ mig nokkuð. Það er eins og hv. þm. finnist, að hann sitji einn inni með alla vizku um þau mál. Ef fiskur er nefndur, fyllist hann þegar af þessum „þekkingar“-vindi.
Ég sé enga ástæðu til þess að afsaka, þótt ég beri frv. fram. Ég sé margt, sem aflaga fer. Og ég er kosinn á þing til þess að gera mitt til, að ráðin verði bót á því. En það er vitanlega á valdi þingsins, hvernig fer um þessa till. mína, eins og önnur mál, sem það fær til meðferðar.