21.03.1931
Neðri deild: 30. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 875 í C-deild Alþingistíðinda. (2001)
122. mál, útflutningur á nýjum fiski
Ólafur Thors:
Ég þarf ekki að svara því miklu, sem hv. flm. beindi til mín. Ég get verið ánægður með undirtektir þeirra hv. þdm., sem talað hafa í þessu máli. Hefir afstaða þeirra flestra verið á hinn sama veg og mín. Þess ber að minnast með þakklæti, að ræðumenn hafa talað af miklum skilningi og velvild í garð sjávarútvegsins, og er þess að vænta, að svo verði einnig framvegis. Er gott til þess að hugsa, að mega kalla til stuðnings hins opinbera til handa sjávarútveginum, þegar í nauðirnar rekur. En sem betur fer er þess ekki þörf í þessu máli, eða a. m. k. hefir þess oft verið brýnni þörf en nú. Ég hefi þá öruggu vissu, að einstaklingsframtakið muni bezt leysa úr þessum málum. Hv. flm. vill hinsvegar láta ríkið beita sér fyrir þessum tilraunum; telur útgerðarmenn ekki hafa aðstöðu til þess. Ég sé nú ekki, að það skipti verulegu máli, hvort það er framtak útgerðarmanna eða þeirra, sem verzla með fiskinn, sem ríður hér á vaðið með markaðsbætur fyrir íslenzkan fisk, eða hvort það er ríkisvaldið, sem gerir það. Hagsmunum framleiðenda, bæði sjómanna og útgerðarmanna, er engu síður borgið í hinu fyrra tilfellinu. En hinsvegar er það sannað af reynslunni, bæði fyrr og síðar, að mjög ber að gjalda varhuga við vanhugsuðum og óþörfum afskiptum ríkisvaldsins af atvinnulífinu. Er þar skemmst að minnast síldareinkasölu og síldarbræðslustöðvarinnar, og skal sú saga betur rakin og eftirminnilegar í sambandi við annað frv., sem bráðlega kemur til umr. hér í deildinni. Erum við hv. flm. að vísu sammála um það, að hefjast beri handa, enda er mér persónulega kunnugt um það, að meðal útgerðarmanna er þegar hafinn mikill undirbúningur í þá átt. Ég er þess fullviss, að eins og það var einstaklingsframtakið, sem skapaði stórútgerðina hér á landi, án tilstyrks hins opinbera, þá mun það einnig verða einstaklingsframtakið, sem öruggast verður. til þess að ryðja fiskútflutningi okkar nýjar brautir á erlendum markaði. Það er að vísu handhæg leið, að því er virðist í fljótu bragði, að varpa öllu slíku upp á ríkið, en bæði er það öldungis ósannað mál, að slíkt leiddi til nokkurs árangurs, nema kostnaðar, og svo er á hinn bóginn ákaflega mikil hætta á því, að mistök og önnur afskipti manna, sem ekki hafa þekkingu á þessum málum, gætu valdið stórtjóni. Er þar og skemmst að minnast þess, þegar síldareinkasalan ætlaði að fara að leita fyrir sér um markað fyrir íslenzka kryddsíld í Ameríku. Annars er það nú orðin venja hér, ef eitthvað þarf að gera, þá sé ekkert annað en láta hið opinbera gera það. Alveg eins og hið opinbera sé einhver brunnur, sem aldrei getur þrotið. En menn gleyma því, að „hið opinbera“ er ekkert annað en gjaldgeta, þrautpínd gjaldgeta fátækra landsbúa. Annars hygg ég, að það hafi litla þýðingu, hvorki til né frá, að deila við hv. flm. um þessi atriði.
Þó að það sé nú að vísu ekki beint viðkomandi þessu máli, þá þykir mér þó eftir atvikum rétt að drepa lítillega á það, hvers vegna togararnir fóru seinna á saltfiskveiðar í vetur en endranær. Hv. flm. tók það sem dæmi þess, að framtak einstaklinganna væri ekki einhlítt. Í grg. frv. er þess réttilega getið, að verð á saltfiski er nú afar lágt. Þar af leiðir, að ekki eru tök á að gera út, nema meðan veiðin er skörpust, en samkvæmt reynslu síðustu ára er marz langsamlega lélegasti veiðimánuðurinn. Hvað ísfisksöluna snertir, þá hefir verðið að vísu verið venju fremur hátt í vetur, en það verður tæplega lagt útgerðarmönnum til ámælis þótt þeir sæju það ekki fyrir, því að ísfiskverð er venjulega mjög lágt í febrúar, en einkum þó í marz. Því er það fjarri öllu viti og sanngirni að kveða upp áfellisdóm yfir útgerðarmönnum með þeim forsendum, að þeim hefði borið að sjá þetta fyrir. (SÁÓ: Eru þeir ekki forsjón fólksins?). Þeir eru a. m. k. betur til þess fallnir en menn eins og hv. 4. þm. Reykv. Annars skal ég upplýsa það, að skipin voru ekki lengur við garðinn en þurfti til viðgerða og ýmissa breytinga, sem leiðir af því, að breytt er um veiðiaðferðir. Annars kemur þetta ekki máli því við, sem hér er til umr., en ég get þó ekki með öllu leitt hjá mér að svara þessu, þar sem þetta átti að vera sönnun þess, hve illa einstaklingsframtakið innti skyldur sínar af hendi, þegar á reyndi.
Ég sé annars enga ástæðu til þess að ræða um misskilning þann, er kemur fram hjá hv. flm. í sambandi við útflutning á frosnum og beinlausum fiski. Hv. flm. er sennilega ekki nægilega kunnur því, sem gerzt hefir og er að gerast á heimsmarkaðinum hvað þetta snertir. Ef þær tilraunir bera árangur, sem gerðar eru bæði af íslenzkum fiskútflytjendum og sömuleiðis keppinautum vorum erlendis, til þess að fá þjóðirnar til að borða frosinn og beinlausan fisk, þá yrði það meira virði fyrir okkur en markaðir fyrir kældan fisk. En sennilega á þetta þó nokkuð langt í land, enda þarf til þess margskonar útbúnað og dýran. Ég tel því ekki rétt að byggja of miklar vonir á þeim útflutningi fyrst um sinn, heldur leggja höfuðáherzluna á útflutning á kældum fiski. Innlendir fiskútflytjendur hafa þegar hafið allmikinn undirbúning, er að þessu lýtur, og meðan ekki er örvænt um árangur þeirra tilrauna, þá held ég, að ríkisvaldið ætti sem minnst að blanda sér inn í þetta mál. Og ef svo fer, að einstaklingsframtakið leysir úr þessum vanda, sem ég hefi fulla trú á, þá getur ríkisvaldið sparað sér öll afskipti, fyrirhöfn og kostnað út af þessum málum.