09.04.1931
Neðri deild: 42. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í C-deild Alþingistíðinda. (2037)

130. mál, notkun bifreiða

Frsm. (Héðinn Valdimarsson):

Í þessu frv. var upphaflega ekki annað en það, að skylda bifreiðaeigendur til þess að tryggja bifreiðarstjóra fyrir bótum vegna slysa við akstur, og skyldu þeir tryggðir í Slysatryggingu ríkisins. N. féllst á, að þetta yrði lögleitt, en auk þess komu fram uppástungur frá vegamálastjóra og bifreiðaeftirlitsmönnum ríkisins, sem n. leizt svo vel á, að hún tók þær upp með nokkrum breyt. og flytur þær á þskj. 329.

Fyrsta breyt. er um breidd bifreiða. Hingað til hafa þær ekki mátt vera breiðari en 1,75 m., en frá því hafa verið veittar undanþágur, allt upp í 1,86 m. Er hér stungið upp á að lögfesta þá hámarksbreidd í stað hinnar fyrri.

Samkv. 5. gr. 1. frá 1926 máttu ekki yngri menn en 20 ára stýra bifreið. Hér er lagt til, að það aldurstakmark sé fært niður í 18 ára aldur, nema 20 ára aldur gildi um bifreiðar til mannflutninga, því að þar þykir þurfa meiri varkárni við.

Þá er brtt. viðvíkjandi hraða bifreiða. Bifreiðaeftirlitsmenn hafa lagt til, að leyfður yrði meiri hraði á bifreiðum en nú er. Innanbæjar er hámarkshraðinn 18 km. á klst., en hér er stungið upp á, að hann verði 25 km. Utan kaupstaða og kauptúna er hámarkshraðinn nú 40 km. á klst., en n. vill hækka hann upp í 50 km. Það er alkunna, að mannflutningabifreiðar aka oft svo hratt, enda er það fullkomlega öruggt á góðum vegi. — Þegar dimmt er, má ekki aka meira en 15 km., en hér er lagt til, að 30 km. komi í staðinn. En aftur á móti er hér sett ákvæði um, að þessi hámarkshraði nær ekki til lögreglueða læknabifreiða, og ennfremur er ráðh. heimilað að takmarka meira en hér er gert ökuhraða á einstökum vegum og ef bifreiðar eru mjög þungar.

Nú er skylda til þess að hafa gjaldvísi á bifreiðum. Hafa þeir verið settir á margar bifreiðar, en ekki þótt nauðsynlegir né gefast vel; þess vegna flytjum við till. um, að þetta sé fellt niður, en þó sé haldið heimild til þess að ákveða þetta síðar, ef ástæður breytast.

Þess má geta, að nú eru bifreiðarstjórar skyldaðir til þess að bera einkennishúfu, en n. þykir ekki ástæða til þess, nema um bifreiðarstjóra við leigubifreiðar til mannflutninga.

Nú eru engin refsiákvæði fyrir óvarkárni við akstur, og því er lagt til, að sett sé almennt ákvæði um, að bifreiðarstjórar skuli sýna almenna varkárni við akstur og meðferð bifreiða á almannafæri.

Þá er næsta till. um að hækka lágmarkstryggingu á stórum bifreiðum. Nú er upphæðin 10 þús. kr. á öllum bifreiðum, en ef um stórar bifreiðar er að ræða, sem flytja marga farþega, getur skaðinn af slysi orðið miklu meiri, svo að eigendurnir hafa stundum ekki getað greitt skaðabæturnar. Þess vegna er lagt til, að bifreiðar, sem flytja fleiri en 6 farþega, séu tryggðar fyrir 20 þús. kr., en minni bifreiðar og vörubifreiðar eins og áður fyrir 10 þús. kr. og mótorhjól fyrir 5 þús. kr.

Þá skal loks fella saman í eina heild lögin frá 1926, 1927 og þessar brtt., þannig, að öll lagaákvæði um notkun bifreiða séu til á einum stað.

N. leggur þá til, að frv. verði samþ. með þessum breytingum.