17.03.1931
Neðri deild: 26. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 949 í C-deild Alþingistíðinda. (2068)

145. mál, einkasala á síld

Haraldur Guðmundsson:

Mér fer nú að þykja þessar umr. skemmtilegar á marga lund. Það er ekki laust við, að nokkur kritur sé innan vébanda íhaldsins hér í deildinni um það, hversu langt skuli gengið í breytingum á síldareinkasölunni. Einn hv. þm., sá sem síðast talaði, vildi láta afnema hana með öllu, hvað sem öðru liði. Þetta er skiljanlegt þeim, er þekkja hugsanagang hv. þm. Dal. og sjónarmið hans í pólitíkinni. Að hans dómi er einn hlutur eða fyrirkomulag „absolut“ gott eða þá að engu nýtt. Svo er um allar einkasölur að hans dómi. Þess vegna vill hann láta útrýma síldareinkasölunni. (ÓTh: Og þeim, er að henni standa). Á sömu skoðun er hv. þm. Reykv. En hversu mikið er leggjandi upp úr till. þessara hv. þm. í þessu máli, skal ég alveg láta ósagt. Ég hygg, að meginþorri útgerðarmanna og sjómanna og allra, sem einhver kennsl bera á þessi mál, séu á þeirri skoðun, að heppilegra fyrirkomulag en einkasölu, í einhverri mynd, sé ekki unnt að finna. En hitt er ofur skiljanlegt, að einhverjir þeirra, og þá sérstaklega útgerðarmenn, vilji breyta fyrirkomulaginu, þannig að þeir geti einir öllu ráðið. Og þær till., sem hér liggja fyrir, eru af þeim toga spunnar fyrst og fremst. Nú er það svo, að útgerðarmenn hafa mikla íhlutun um stjórn Einkasölunnar, og er vert að veita því eftirtekt í sambandi við dæmisögu þá, sem hv. þm. kom með og hv. þm. Dal. var svo ákaflega hrifinn af. Nú er það upplýst, að sá framkvæmdarstjórinn, sem réð um þessa margumtöluðu kryddsíld, er gamall útgerðarmaður, og ber nánast að skoða hann sem fulltrúa útgerðarmanna í stjórn Einkasölunnar. Hann réð þessu, gegn mótmælum matsmanna og meðstjórnenda sinna. Það var gamall útgerðarmaður, sem átti þessa saltsíld, og hann fékk framkvæmdarstjórann til þess að láta krydda hana og senda til Ameríku. Matsmennirnir munu hafa mótmælt þessu eindregið, en allt kom fyrir ekki. Ég veit nú ekki, hvort hv. þm. telur þetta meðmæli með því að leggja alla stj. Einkasölunnar í hendur útgerðarmönnum. Mér finnst þetta fremur gefa bendingu um það, að gjalda beri varhuga við einræði útgerðarmanna í þessum efnum.

Hv. þm. Borgf. viðurkenndi að vísu, að sjómenn hefðu ekki nema þriðjung fulltrúanna samkv. þessum till. En hann vildi halda því fram, að sjómenn fengju það upp bætt með því, að þeim væri gefinn kostur á að kynna sér fyrirkomulag, rekstur og reikninga Einkasölunnar. Því ber ekki að neita, að slíkt er nokkuð til bóta frá því, sem er um fiskverzlunina og útgerðarfyrirtækin yfirleitt. En að því er síldarverzlunina snertir er réttur sjómanna til að kynna sér þessa hluti í engu aukinn, nema síður sé, frá því, sem nú er. En úr því hv. þm. telur þetta lofsvert að því er við kemur síldarverzlun, finnst honum þá ekki eins ástæða til þess að opna reikninga saltfiskverzlunar okkar, sem til þessa hafa verið lokuð bók fyrir öllum almenningi?

Um skipun Einkasölustjórnarinnar nú er það að segja, að tveir menn í útflutningsnefndinni eru þar sem fulltrúar sjómanna og verklýðsfélaga um land allt, annar þeirra, hv. þm. Ak., er kosinn af Alþýðufulltrúum á Alþingi, en hinn, Steinþór Guðmundsson, er kosinn af verkalýðssambandi Norðurlands. Því næst eru tveir nefndarmennirnir, sem ber að skoða fulltrúa útgerðarmanna. Þeir Ásgeir Pétursson, kosinn beint af útgerðarmönnum, en hinn, Björn Líndal, kosinn af íhaldsfl. á Alþingi. Fimmta manninn í n. ber að skoða sem fulltrúa stjórnarflokksins. Útflutningsnefndin er því skipuð tveim og tveim fulltrúum útgerðarmanna og sjómanna, og þurfa útgerðarmenn sízt að kvarta, þar sem fimmti maður n. hefir jafnan fremur snúist á sveif með þeim í öllum verulegum atriðum, illu heilli. Auk þess hefir nú útgerðarmönnum verið gert það til hugnunar, að reka þann framkvæmdarstjórann, sem þeim var mestur þyrnir í augum, og tel ég það hiklaust hið versta verk og heimskulegt glappaskot útflutningsnefndar, því að ég hygg, að sá, sem rekinn var, hafi að ýmsu leyti verið færastur framkvæmdarstjóranna og sízt líklegur til að ganga erinda andstæðinga verkalýðsins.

Hv. þm. Vestm. var að tala um, að það væri blekking, að hugsmunir sjómanna og útgerðarmanna væru andstæðir. Hélt hann því fram, að þeir væru í öllum verulegum atriðum sameiginlegir, en aftur væri til þriðja „stéttin“, sem hættuleg og fjandsamleg væri hagsmunum beggja og í hvívetna til bölvunar, og átti hv. þm. þar við okkur jafnaðarmenn. Hann veit nú án efa, að meiri hluti sjómanna eru jafnaðarmenn og ættu þeir því samkv. kenningu hans að vera fjandsamlegir sjálfum sér. En nóg um þessa vitleysu. Ég vil nú spyrja hv. þm., hvort það hafi aldrei komið fyrir í Vestmannaeyjum, að misklíð rísi út af kaupgjaldi, og hvort honum hafi þá ekki þótt hagsmunir sjómanna og útgerðarmanna andstæðir. Eða heldur hv. þm., að það séu alltaf einhverjir vondir menn, eins og ég og mínir líkar, sem standi að baki öllum kaupdeilum? Ég þori að fullyrða, að a. m. k. sjómenn líta ekki svo á málið. Því verður heldur ekki með rökum mótmælt, að hagsmunir sjómanna og útgerðarmanna eru í flestum greinum andstæðir, eins og verkamanna og vinnukaupenda almennt, og svo verður og framvegis, þangað til atvinnuháttum og skipulagi verður breytt í réttlátara og hagkvæmara horf.