21.03.1931
Neðri deild: 30. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í B-deild Alþingistíðinda. (215)

133. mál, greiðsla verkkaups

Magnús Torfason:

Sakir þess að frsm. n. er ekki við, ætla ég að hlaupa í skarðið og mæla með frv. í hans stað. N. telur, að ákvæði frv. séu til bóta, en hefir borið fram brtt. við það, til þess að frv. yrði betur orðað og næði betur tilgangi sínum, þannig að ákvæði þess nái einnig til aksturslauna bifreiðarstjóra. Frekari orðum sé ég ekki ástæðu til að fara um frv., því að hér er um svo rétt og sjálfsagt mál að ræða.