14.03.1931
Neðri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í C-deild Alþingistíðinda. (253)
111. mál, opinber vinna
Ólafur Thors [óyfirl.]:
Mér finnst, að það sé ástæðulanst fyrir hv. þm. Ísaf. að vera að amast við því, þótt hv. þm. Barð. talaði svo skemmtilega um þetta mal. Hv. þm. Barð. er þekktur að því að vera hnyttnari en aðrir í ræðum sínum, og ætti hann því frekar að fá þökk en óþökk fyrir það að skemmta okkur í þessari leiðinlegu samkundu. Og sízt situr það á hv. þm. Ísaf. að vera að amast við þessu, þar sem hann hló svo dátt, að ég sá alla leið niður í kok á honum.
Annars líkaði mér ræða hv. þm. Ísaf. vel. ég hefi oft heyrt jafnaðarmenn tala með miklum látburðum og af mikilli tilfinningu um mál sem þessi, og mála með sem svörtustum litum kjör þeirra, sem Iægra eru settir, en hugsa aldrei lengra. Svo er það t. d., er þeir tala um skattamálin. Um hina hliðina, sem er sú, hver gjaldgeta atvinnuveganna er á hverjum tíma, ræða jafnaðarmenn aldrei, og við, sem hofum tekizt það hlutverk á hendur að koma vitinu fyrir þá í þessu efni, eigum vanþakklátt starf að rækja, þvi að það er vitaskuld þakksælla að predika mönnum fagnaðarboðskap kauphækkunarinnar en að benda á þá meinlegu staðreynd, að ekki megi hafa kröfurnar meiri en gjaldgetan þolir. Þó að ég vænti ekki mikils af hv. þm. Ísaf. sem bankastjóra, er ég þess sannfærður, að hann muni ekki tala af sama gáleysinu og ábyrgðarleysinu um þessi mál eins og hann gerir hér nú, eftir að hann er búinn að vera bankastjóri í nokkur ár og hefir þannig kynnzt betur atvinnulífi þjóðarinnar. Ég efast ekki um það, að fyrir jafnaðarmönnum vaki eitthvað gott í garð hinnar vinnandi stéttar, en till. þeirra horfa ekki til mikilla heilla fyrir þá stétt, því að þær mundu leiða til alþjóðaratvinnuleysis, ef fram gengju. Ef boginn er spenntur of hátt og meiri kröfur gerðar en atvinnuvegirnir þola, hlýtur að leiða til þess, að strengurinn springi. (HV: Er hv. þm. að ræða um vegavinnukaupið?). Ég er að ræða um kaup hér í landinu almennt, en ég get vel skilið það, að hv. 2. þm. Reykv. sé kærara annað umræðuefni. Hann þjónar þeim tveimur herrunum, sem erfiðast er að þjóna, þar sem hann er annarsvegar umboðsmaður fyrir hreinræktað auðvaldsfélag, en hinsvegar form. í verkamannafélagi. Ég veit það að vísu, að hv. þm. er vel gefinn, en þó hefi ég oft undrað mig yfir því, hve laglega honum tekst að leika þetta tvöfalda hlutverk. (HV: Er þm. ekki ánægður með það?). Jú, ég verð að taka undir það með hv. þm. Barð., að verri maður gæti að þessu komið. Ég veit það, að hv. 2. þm. Reykv. hefir stundum orðið að ganga lengra en hann hefði kosið að ganga. (HV: Gagnvart Kveldúlfi?) Jafnt Kveldúlfi sem öðrum útgerðarfélögum.
Hv. þm. Ísaf. heldur því fram, að kjarni þessa máls sé sá, hvort ríkið eigi að gera verr við verkamenn en einstakir atvinnurekendur eða ekki. Það má alveg eins vel snúa þessu við og segja, að kjarni málsins sé sá, hvort verkamenn eigi að gera betur við ríkissjóðs en einstaka atvinnurekendur eða ekki. Það er margt, sem mælir með því, að verkamenn eigi að gera lægri kröfur gagnvart ríkissjóði en einstökum atvinnurekendum. Eins og opinberri vinnu er háttað, vinna þeir verkamenn, sem hana stunda sér til framfærslu, jafnframt að nytjamálum sinnar sveitar, flestir hverjir að minnsta kosti, og er því ekki nema sanngjarnt, að þeir vinni fyrir lægri kjör en hjá einstökum atvinnurekendum.
Ég þarf svo ekki að fara frekari orðum um efnishlið þessa máls, en vil nú, að gefnu tilefni, víkja að því tilboði um vantraust, sem hv. þm. Ísaf. gaf mér. Verð ég að segja, að það voru undarleg svör, sem hv. þm. Ísaf. gaf mér um það, hvort hann mundi styðja vantraustsyfirlýsingu á stj. eða ekki. Þegar hann hefir sjálfur ráðizt á stj. af mikilli grimmd og ég geri þá fyrirspurn til hans, hvort hann muni vilja styðja vantraust, fæ ég þau svör, að ég sé ragur, ég þori ekki að koma með vantraust á stj. Vita þó allir, að ég bæði þori og vil; ég hefi aldrei farið dult með það, að ég er andstæðingur núv. stj. Hv. þm. Ísaf. má því að vísu ganga um afstöðu mína til vantrausts, ef hann ber það fram. Um hann sjálfan vita hinsvegar allir, að hann er stuðningsmaður stj., og af þeim ástæðum þýðir mér ekki að bera fram vantraust, nema hann vilji fylgja því. Hv. þm. ætti að geta skilið þennan eðlismun á afstöðu minni og hans sjálfs til vantrausts. En þar sem ekki er meiri alvara að baki árásum hv. þm. á stj. en svo, að hann ber ekki sjálfur fram vantraust, hefi ég ekki ástæðu til að halda, að hann muni fylgja vantrausti, þó að ég bæri það fram. ég get ekki neitað því, að mér þykir það hálfbroslegt, þegar þessi hv. þm. er að reigja sig og hafa í frammi dólgslæti út af því, að stj. píni sjúklinga og bruggi áfengi, til þess að þeir, sem drykkfelldir eru, fari sem hraklegast fyrir þessu eitri. Ef fyrrverandi stj. hefðu látið þjóna sína brugga áfengi og hælzt um á eftir yfir því að hafa með því móti getað komið því út á meðal þjóðarinnar, er mér sem ég sjái hv. þm. Ísaf, fyrir mér. Þá hefði hann sagt, að fyrst væru þegnarnir skattpíndir og svo bruggað áfengi, til þess að leiða í freistni þá, sem veikir væru á svellinu, og taka síðasta eyrinn af vínhneigðum heimilisfeðrrum frá sveltandi konum og börnum, sem biðu þess í angist, að þeir kæmu heim úr vínholum stj. En nú er hv. þm. Ísaf. rólegur. Nú segir hann einungis, að stj. ætti skilið að vera vikið frá, og hann mundi tilleiðanlegur að fylgja vantrausti, ef ég bæri það fram. En hver getur trúað því, að hugur fylgi máli hjá hv. þm. Ísaf., þar sem hann situr auðum höndum samtímis því, sem hann ber þær sakir á stj., að hún gangi á þeim veika og minna máttar og píni verkalýðinn svo, að þjóðarskömm sé að? Hver getur tekið annað eins og þetta alvarlega? Það getur að vísu legið sú skýring á bak við þetta, að einstaka dyggir verkamenn fái sín góðu laun, en það eru þá verkamenn stj., og ekki aðrir.
Hv. þm. Ísaf. gerði mér tilboð um það að vera með mér í því að fella stj., ef ég vildi tryggja honum, að þetta frv. næði fram að ganga, og stj. væri á móti því. Af undirtektum þeim, sem frv. hefir þegar fengið hér í deildinni, vissi hv. þm. ósköp vel, að Framsóknarflokkurinn stendur á móti því. Hv. þm. vissi ennfremur, að hv. þm. Barð. er andvígur frv. Engu að síður gerir hann mér þetta tilboð. Nú hefir Framsóknarflokkurinn 14 mönnum á að skipa hér í deildinni, og þar sem hv. þm. Barð. er einnig á móti frv., mátti hv. þm. Ísaf. fyrirfram vita, að ég gat ekki tryggt honum, að frv. næði fram að ganga, hve feginn sem ég hefði viljað. Þótt ég meira að segja hefði verið slíkur áhrifamaður í mínum flokki, að ég hefði getað fengið alla flokksbræður mína til að fylgja mér um að samþ. frv., hefði það ekki nægt að heldur. Framsóknarþingmennirnir hefðu staðið yfir moldum þess og það fallið með jöfnum atkv. Þó að hv. þm. Ísaf. geri mér því þetta tilboð, má ekki af því marka, hvort nokkur alvara er á bak við orð hans. Það má vera, að hv. þm. Ísaf. langi til að koma með vantraust á stj., en ég get búizt við, að hann sé orðinn stj. svo taglhnýttur með gullböndum, að hann geti ekki losað sig. Mér þykir að vísu gaman að því, að hv. þm. Ísaf. býður mér sig og flokksbræður sína til kaups við þessu verði. Og ég vildi líka gjarnan kaupa þá, því að þetta eru greindir og góðir menn, en mér er ekki grunlaust um, að eignin sé dyr. Ætli hún sé ekki veðsett öðrum og að þurfi því að kaupa hana út? Það er langt frá því, að ég vilji kaupa jafnaðarmenn gegn því að þurfa að greiða þeirra vegna 30–40 þús. kr. árlega. Ég get sagt hv. þm. Ísaf. það í einlægni, að ég er allt annað en fús til að eiga börn með honum. Svo óásjálegur sem flokkur hans var, áður en hann gekk í hjónasængina með Framsóknarflokknum, er hann þó sýnu verri nú, eftir að þeir atburðir hafa gerzt. Get ég og sagt hv. þm. Ísaf. það, að jafnan er illt að eiga þræl að einkavin.