08.04.1931
Neðri deild: 41. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 83 í C-deild Alþingistíðinda. (333)

123. mál, dragnótaveiðar

Halldór Stefánsson:

Almennar umr. um þetta mál eru nú orðnar svo langar, að naumast er vert að lengja þær að verulegum mun, og skal ég þá heldur ekki gera það.

Höfuðástæðan, sem færð hefir verið með þessu frv., er sú, að það sé hagnaðarvon, sem af því mætti verða fyrir Íslendinga, ef það gengur fram. Jafnframt er því haldið fram, að engin hætta fylgi því, þótt rýmkað sé um skilyrðin til þessarar veiði.

Ég vil nú lýsa yfir því sem minni skoðun, að ég tel þessi rök hæpin. Ég álit, að eins og nú er varið rétti Íslendinga og annara, þ. e. Dana, til þessara veiða í landhelgi, þá sé vafasamt, að almennir hagsmunir okkar aukist, þótt rýmkað sé um þessa veiðiaðferð. Byggi ég það álit mitt á talsverðri reynslu, sem um þetta hefir fengizt á Norð-Austurlandinu og mér er kunnug af umsögn annara. Um síðastl. aldamót stunduðu Danir dragnótaveiðar við Bakkafjörð og Vopnafjörð. Mun sú útgerð hafa verið frá Esbjerg. Þessa veiði stunduðu þeir í nokkur ár, en hættu svo. Um ástæðuna fyrir því, að þeir hættu, er ekki beinlínis vitað, en geta má sér til um hana. Hefir hún eflaust verið sú, að fiskurinn hefir verið genginn svo til þurrðar, að veiðin hefir ekki borgað sig, því innlendir menn, sem stundað höfðu þessa veiði með góðum árangri áður, urðu nú lítt fiskvarir um hríð. Þarna varð svo ekki veiðivart að kalla í 10–20 ár, þótt reynt væri með venjulegum veiðarfærum. En eftir þann tíma for aftur að verða vart við flatfisk, og þá líkt og áður.

Stuttu áður en þær almennu takmarkanir, sem settar voru í lögunum frá 1928, komu til framkvæmda, voru Danir aftur farnir að veiða þarna. En þeir hættu, er 1. voru sett. Má ætla, að ástæðan fyrir því, að þeir hættu þá, hafi verið sú, að þeim hafi þótt ákvæði 1. of þröng fyrir sig, þar sem ekki mátti byrja fyrr en 1. september og þeir gátu því ekki notað sumarmánuðina. Síðastl. sumar varð kolans nokkuð vart í veiðarfæri, sem þó voru notuð í smáum stíl.

Á síðastl. ári var stofnað félag í Færeyjum, sem þeir nefna Ísvirki. Er tilgangurinn sá, að veiða flatfisk og ýsu. Hefir félag þetta, sem hefir 7 skip, notið mikils stuðnings frá Danmörku. Hefir það fengið þaðan 85% lán út á verð skipanna. Nokkur af skipum þessum komu til Austurlands síðastl. sumar og keyptu ysu og kola. Þegar dragnótaveiði mátti byrja, fóru 4 þeirra, að því sem mér er tjáð, að stunda þær veiðar, — ekki aðeins 2 skip, eins og hv. flm. hélt fram. Tvo þessara skipa fengu svo sekt fyrir ólögleg veiðarfæri. Það er nú vitanlegt, að félag þetta bíður þess með eftirvæntingu, að þessi rýmkun, sem frv. fer fram á, verði gerð. Þessi floti Færeyinga er nærtækur og nokkuð stór og er tilbúinn að hremma bráðina. Og þótt Íslendingar gætu vitanlega lært veiðiaðferð Dana og búið sig til veiða, þá mundu þeir ekki verða svo fljótt tilbúnir, að hinir, sem eru þegar fyrirfram tilbúnir og bíða aðeins eftir leyfinu, sem þetta frv. á að færa þeim, hefðu ekki þegar eitthvað að gert. Mætti því svo fara, að afleiðing þessarar rýmkunar yrði sú, að þarna og viðar við land mundi þessi fiskur vera svo til þurrðar genginn af veiðum Færeyinga og Dana, þegar Íslendingar væru tilbúnir, að Íslendingar sætu uppi meti kostnaðinn af því að búa sig til veiðanna, en misstu fiskjarins. Ég tel því hagnaðarvon Íslendinga af þessari rýmkun a. m. k. mjög vafasama, ef útkoman yrði þá ekki alveg gagnstæð. Þeir, sem hagnaðarins nytu, myndu verða aðrir en íslendingar.