07.03.1931
Neðri deild: 18. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 87 í C-deild Alþingistíðinda. (341)

89. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur

Flm. (Héðinn Valdimarsson):

Út af orðum hv. 2. þm. G.-K. vil ég aðeins láta þess getið, að ég hefi séð skjal, undirskrifað af 80 fullorðnum mönnum, sem búa í Skildinganesi, þar sem þeir óska eftir því, að umræddur hluti Seltjarnarneshrepps verði lagður undir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, og er það meiri hluti kjósenda í hreppnum.