09.04.1931
Neðri deild: 42. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 101 í C-deild Alþingistíðinda. (361)

89. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur

Frsm. meiri hl. (Héðinn Valdimarsson):

Hv. 2. þm. G.-K. er þetta mál vandabundið, sem eðlilegt er, þar sem hann er lóðaeigandi í Skildinganesi ásamt föður sínum og bræðrum, og er því skiljanlegt, að hann reyni að varna framgangi þess, þótt það sé ekki afsakanlegt. En rök hans voru alveg þau sömu sem í fyrra, og get ég því vísað til svara minna við þeim í Alþt.

Hv. 1. þm. Skagf. minnti á Friðriksberg, hvað lengi sá staður hefir verið sjálfstæður innan takmarka Kaupmannahafnar. Hv. þm. veit eflaust vel, hvernig þróun Kaupmannahafnar hefir verið háttað. Hver útborgin eftir aðra hefir verið lögð undir lögsagnarumdæmi hennar, því að auðugir menn hafa af fjárhagsástæðum flutt út fyrir takmörk borgarinnar til þess að flýja réttmæta skatta. En vegna aðstöðu þeirra manna, sem Friðriksberg byggja, hefir enn ekki tekizt að sameina það Kaupmannahöfn. Þykir flestum Það stórhneyksli, að engin stj. hefir komið því í gegn, þótt Kaupmannahafnarbúar hafi oft óskað eftir því, og eru þar allar stéttir, nema ríka fólkið, á einu máli.

Þá minntist hv. þm. á það, að ef Skildinganes væri sameinað Reykjavík, þá missti það réttinn til að vera sjálfstætt hreppsfélag. Það liggur auðvitað í hlutarins eðli. En þar sem óskir um sameiningu við Reykjavík hafa nú komið fram frá Skildinganesbúum, þá geta þeir ekki æskt eftir að vera sérstakur hreppur til annars en þess að geta sameinazt Reykjavík.