09.04.1931
Neðri deild: 42. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í C-deild Alþingistíðinda. (362)
89. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Jón Ólafsson [óyfirl.]:
Aðalrök hv. 2. þm. G.-K. gegn frv. voru þau, að þingið. hefði áður tekið ákvörðun um þetta mál. ég hélt, að hann væri nú búinn að vera nógu lengi á þingi til þess að þekkja það, að afstaða þingsins til einstakra mála getur breytzt, bæði við nánari athugun og breyttar ástæður. Ég held jafnvel, að mér sé óhætt að fullyrða, að hv. þm. hafi sjálfur einhverntíma skipt um skoðun á máli, aðeins fyrir nánari athugun. Það eru nú svo mörg mál, sem fyrir þingið koma hvert ár, að þm. munu ekki geta rannsakað þau öll til hlítar. Þess vegna daga mörg mál uppi á hverju þingi, og önnur eru afgr. á annan hátt heldur en rétt er og bezt. Þegar slík mál hafa verið athuguð nægilega vel, greiða menn oft öðruvísi atkv. um þau en áður, án þess að telja sér minnkun að.
En hv. þm. gleymdi alveg að hrekja aðalatriði þeirra röksemda, sem frv. er byggt á. Og það lítið hv. 1. þm. Skagf. reyndi í þá átt, var á misskilningi byggt. Hann var að tala um, að landeigendur hefðu full umráð yfir landi sínu og gætu gert þar þau mannvirki, sem þeir vildu. Ég vil aðeins benda honum á, að í hafnarlögum Reykjavíkur er tekið fram, að engin hafnarmannvirki megi gera innan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur, nema með samþykki bæjarstj. Það er því misskilningur, að Skildinganesbúar gætu jafnt byggt höfn á landareignum sínum, þótt þorpið væri lagt undir Reykjavík.
Hv. 2. þm. G.-K. vildi gera lítið úr undirskriftum húsráðendanna á Þormóðsstöðum. Það er rétt, að þeir hafa ekki látið konur sínar, hjú né leigjendur skrifa undir með sér. Það munar um 15 atkvæðum, og get ég eflaust fengið undirskriftir þess fólks fyrir 3. umr., ef hv. þm. telur það skipta svo miklu máli.
Ég veit, að hv. 2. þm. G.-K. gengur ekki annað til andstöðu við þetta mál heldur en að verja hreppsfélagið, þó að margir þar vilji helzt losna við þennan skika, sem um er að ræða. Þeir sjá, að ef Skildinganes er ekki lagt undir Reykjavík, þarf hreppurinn að reisa þar sérstakan barnaskóla og sjá um ýmsar framkvæmdir, sem éta mundu upp allt það fé, sem þorpsbúar leggja af mörkum. En þeim finnst einhver niðurlæging í því að láta Reykjavík gleypa í sig part af hreppnum, og par sem þeir hafa alltaf verið á móti því, þegar landskikar hafa verið lagðir undir Reykjavík, kunna þeir ekki við annað nú.
Það er rétt að geta þess, að á þessum landskika er engin atvinna, hún er öll sótt hingað til Reykjavíkur, nema hvað örfáir menn vinna hjá steinolíufélaginu. Þess vegna á Reykjavík einnig að vera skjól og skjöldur íbúanna í öðrum málum, þar sem þarfir þeirra og Reykvíkinga eru sameiginlegar. Það er aðeins fyrir skammsyni og fastheldni við gamlar kreddur, að þetta mál hefir ekki enn náð fram að ganga.