13.04.1931
Neðri deild: 45. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 108 í C-deild Alþingistíðinda. (371)
89. mál, stækkun lögsagnarumdæmis Reykjavíkur
Ólafur Thors:
Ég get verið þakklátur hv. þm. Barð. Það var honum líkt að vilja, að það réði í málinu, sem réttlátast er. Hv. 1. þm. Reykv. talaði um, að hér væri verið að leika leik. Nei, hér er ekki um neinn leik að ræða. Það er verið að ræða um það, eða sama sem, hvort þessi hreppur á að afhenda Reykjavík gjaldstofn, sem gefur af sér 24 þús. kr. tekjur árlega til hreppsins, auk sýslugjalda.
Hv. þm. var að vona það, að hv. Alþingi hefði kjark í sér til að samþykkja þetta frv. Ég vil vona það, að Alþingi hafi aldrei þann kjark, sem til þess þarf að samþykkja, að hinn sterki megi kúgi hinn veika, sér til hagsmuna.
Hv. 2. þm. Reykv. segir, að það sé náttúrlegast, að íbúarnir í Skildinganesi ráði, og að þeir hafi þegar lýst yfir sínum vilja. En þetta er alveg rangt. Það hefir að vísu komið áskorun frá nokkrum hluta hreppsbúa, en íbúarnir þar eru um 450–500, og mikill meiri hluti þeirra hefir ekkert látið til sín heyra.
Ég get ekki annað en litið á það sem vott um ranglæti og hræsni, þegar menn eru að tala um það, að fullt gjald eigi að koma fyrir þetta land, — þegar menn standa upp brosandi eins og englar og tala um það, að hlutaðeigendum skuli enginn óréttur ger. Hver getur sagt um það í dag, hvers virði þetta land verður í framtíðinni? Það er öllum vitanlegt, að landið stígur í verði dag frá degi, og það veit Reykjavík, og einmitt þess vegna sækir hún svo eftir því að fá það til eignar þegar í stað an allrar tafar.
Hv. 1. þm. Reykv. má ekki ganga út frá því, að þeir, sem fara vilja samningaleiðina í þessu máli nú, lofi því að vera með þvingunarlögum á næsta þingi. Þó nokkrir þm. hafi skipt um skoðun í þessu máli nú, þá eru margir, sem líta á þetta sem stefnumál. Og málið snýst um sjálfræði sveitarfélaganna, hvort þau eigi að halda því eins og hv. Alþingi gaf þeim það með sveitarstjórnarlögunum frá 1927. Ég vænti þess, að hv. Alþingi sé enn á sömu skoðun, og að það þess vegna samþ. brtt. á þskj. 372, en ef það fellir þær, þá felli það líka frv.