18.02.1931
Neðri deild: 3. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 52 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

25. mál, bókasöfn prestakalla

Dómsmrh. (Jónas Jónsson):

Þetta frv., ásamt þeim tveim frv., sem næst eru á dagskrá á eftir því (frv. til l. um embættiskostnað sóknarpresta og aukaverk þeirra og frv. til l. um kirkjur), er eitt af þeim frv., sem kirkjumálanefndin hafði lokið við í fyrra og lögð voru fyrir Ed. þá í þinglokin, svo að kjósendum í landinu mætti gefast kostur á að kynnast þeim, því að þess var engin von, að þingið í fyrra gæti afgr. þau. Hinsvegar má búast við, að frv. nái nú samþykki Alþingis, og þá ef til vill í eitthvað breyttri mynd.

Frv. lýtur að því, að prestum sé gert kleift að koma sér upp bókasöfnum, trúfræðilegs og menningarlegs efnis, og séu bókasöfnin eign prestakallsins eða landsins, svo sem staður og hús. Er hér um nýjung að ræða, sem ekki hefir verið reynd fyrr. Frv. fylgir allýtarleg grg., sem ég vil ekki fara að endurtaka.

Leyfi ég mér svo að leggja til, að frv. verði vísað til menntmn., að lokinni umr.