16.03.1931
Neðri deild: 25. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í C-deild Alþingistíðinda. (531)
4. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Sigurður Eggerz:
Ég ætti nú í raun og veru ekki að þurfa að halda langa ræðu til að mæla fyrir till. eins og þessari, mér sýnist satt að segja sanngirnin mæla svo mikið með henni. Það er nokkuð óeðlilegt, að menn borgi tekjuskatt af sveitarútsvörum. Tökum t. d. mann, sem á að greiða útsvar og tekjuskatt af 10 þús. kr. Í útsvar greiðir hann 2 þús. kr. Þá eru eftir 8 þús. Í staðinn fyrir að eiga nú að borga tekjuskatt af 8 þús. kr., þá verður hann að borga skatt af 10 þús., þeirri upphæð, sem honum hefir aldrei komið til tekna.
Það liggur í hlutarins eðli, að annaðhvort á að draga allt frá eða ekkert. Það getur ekki byggzt á neinum skattareglum að eiga að draga helminginn frá.
Hv. frsm. meiri hl. sagði, að þetta gerði svo mikla röskun, að ef mín till. yrði samþ., þá yrði að grípa til þess að hækka skattstigann.
Það getur enginn sagt um, hvað miklu það munar á skatttekjum ríkissjóðs, hvort þessi breyt. verður samþ. eða ekki. Í núgildandi lögum er leyft að draga skatta og útsvör frá skattskyldum tekjum. Og ég hygg, að í þessu nýja skattakerfi, sem nú er verið að setja upp, sé yfirleitt ekki gert ráð fyrir hærri sköttum en áður voru. Ég þarf ekki að fara meira út í það, er snertir réttlætisatriði þessarar brtt. minnar, það er svo augljóst. Þó vil ég benda á, að tekjuskatturinn kemur mjög niður á embættis- og launamönnum, sem margir hafa mjög lag laun. Það er annað mal, hvort hægt er að greiða þeim meira. Hvað sem því liður, er ekki hægt að bera á móti því, að laun þeirra eru lag. Ef sú breyt. er samþ. að reikna skuli skatt af sköttum, er það beinlínis niðurfærsla á kaupi þessara manna.
Það mun aðallega verða haft á móti brtt., að hún geri skatttekjur ríkisins of litlar. En eins og ég hefi þegar bent á, mun mþn. hafa gengið út frá því, að nægar tekjur fengjust samkv. till. hennar, þó þessi frádráttur eigi sér stað.
Það hefir mikið verið barizt gegn því hér á Alþ., að tekjuhalli sé á fjárlögum. Það er jafnvel eins og mönnum finnist þá allt búið og allt í bezta lagi, aðeins ef hægt er að koma í veg fyrir tekjuhalla. Til þess eru tvær leiðir: önnur að spara sem mest öll útgjöld ríkissjóðs, og hin að auka tekjur hans. Þessu virðist hv. þm. hafa hætt til að blanda saman; þeir hafa sofið rólegir og talið öllum skyldum fullnægt, hafi fjárl. verið afgr. án tekjuhalla. Það hefir ekki verið hugsað um, þó til þess þyrfti að hækka skatta og tolla. Það hefir viljað gleymast sú staðreynd, að gjaldþoli gjaldenda eru takmörk sett. Það er gaman að athuga þessa „framþróun“ í fjármálunum, af því talað er um, að till. mín muni rýra um of tekjur ríkissjóðs. Vildi ég, með leyfi hæstv. forseta, mega lesa upp nokkrar tölur úr skýrslu hæstv. fjmrh. Gjöld ríkissjóðs voru:
Árið 1924 .............. 9503 þús. kr.
— 1925 .............. 10910 — —
— 1926 .............. 12641 — —
— 1927 .............. 12779 — —
— 1928 .............. 13177 — —
— 1929 .............. 15184 — —
— 1930 .............. 17166 — —
Af þessu sest, hvað af því hefir leitt að láta stjórnirnar stundum hafa of miklar tekjur.
Ef manni, sem vanur er að lifa af t. d. 3000 kr., hefir áskotnazt aukið fé og fer svo að lifa langt fram úr venjulegum tekjum, þá stendur sá maður illa að vígi, ef hann aftur verður að lifa af fyrri tekjum. Kröfur hans til lífsins eru orðnar stærri, en getan eins og hún upprunalega var.
Svipað er um ríkið. Þess vegna getur mikill tekjuafgangur orðið ríkinu til ills, þegar stj. kann ekki með hann að fara, eða réttara, þegar stj. eyðir honum í heimildarleysi, eins og nú hefir átt sér stað, og eykur hin föstu árlegu útgjöld að miklum mun með óhóflegum og óheimilum ráðstöfunum sínum. Í hendur stj. eins og þessarar hygg ég að óráðlegt sé að láta meiri tekjur en nauðsyn rekur til, og hygg ég, að þær verði nógu háar, þó brtt. mín sé samþ.
Þessar stuttu aths. vildi ég koma fram með í sambandi við brtt. mína. En af því ég er nú staðinn upp, langar mig til að víkja að einu atriði í frv. Tilefni þess er bréf, sem fjhn. hefir borizt frá Skattþegnasambandi Íslands. Er því meiri ástæða til að veita því athygli, þar sem mjög þekktur maður, próf. Einar Arnórsson, hefir undirritað það.
Í bréfi þessu eru aths., sem snerta 8. gr. frv. Þar er ákveðið, að tekjuskattinn samkv. 6. gr. og 7. gr. megi hækka og lækka um ákveðna hundraðstölu með einföldu fjárlagaákvæði. Ég játa, að ég hafði ekki veitt þessu ákvæði athygli, þangað til ég sá þetta bréf, sem vekur athygli á því, að það muni ganga nærri stjórnarskrárbroti. Í stjskr. stendur: „Engan skatt má á leggja né breyta né af taka, nema meti lögum“. Það er enginn vafi á, að þegar talað er um lög í þessu sambandi, er ekki átt við fjárlög. Það sest ákveðið í stjskr., að hún gerir greinarmun á lögum og fjárlögum. Og nú er í sjálfri stjskr. tekið ákveðið fram, að: „Engan skatt má á leggja né breyta né af taka, nema með lögum“. En í frv. er aftur ákveðið, að þetta megi gera með fjárlagaákvæði innan vissra takmarka.
Ég veit, að sumir munu halda fram, að fjárlög séu lög eins og önnur lög. En ef maður athugar, að hverju ákvæði stjskr. um skattaálagningu stefnir, er það fljótskilið. Með þeim á að tryggja, að ekki séu gerðar breyt. á sköttum, nema eftir mikla athugun. Höfundar stjskr. hafa skilið, hvað þýðingarmikið það er fyrir þegnana, að ekki sé hægt að skella á þá nýjum og nýjum sköttum án nákvæmrar yfirvegunar. Og fyrir því er betri trygging, ef skipað er fyrir um skattana með sérstökum lögum, heldur en ef það er gert í fjárlögum. Það er hægt að koma fram breyt. á fjárl. á einfaldari hátt heldur en á öðrum lögum. Ef t. d. fjárlögin koma fyrir Sþ., ræður þar úrslitum einfaldur meiri hl., en þannig er ekki um önnur lög.
Ég lít svo á, að við eigum að vera varfærnir í því, að ganga ekki of nærri stjskr. Um grundvallarlög hvers ríkis þarf að vera helgi, því hlutverk þeirra er m. a. að vernda og tryggja borgurum þjóðfélagsins ýms þeirra helgustu réttindi. Það er ekki þjóð vorri samboðið, að löggjafarvaldið gangi um of nærri stjskr.
Það heyrir að vísu undir hæstv. forseta að skera úr, hvort ákvæði þessa frv. stríða gegn fyrirmælum stjskr. En ég álít, að aldrei eigi að samþ. till., sem vafi getur leikið á, hvort samræmanlegar eru stjskr. Og ég held, að skilningur próf. Einars Arnórssonar á þessu máli sé réttur. Ákvæði frv. um að hækka og lækka megi skattinn með fjárlögum, virðist í sjálfu sér lítið eftirsóknarvert.
Því ekki að fara hina gömlu og góðu lagaleið?