26.02.1931
Efri deild: 10. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í D-deild Alþingistíðinda. (558)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Jón Baldvinsson:
Ég hafði ekki búizt við miklum umr. um þetta mál. Ég gerði ráð fyrir því, að það gengi í gegn án n. En mér hafði líka fallið úr huga, að nú standa kosningar fyrir dyrum, og þá var nú svo sem auðvitað, að þessu máli yrði vísað til nefndar, til þess að hægt væri að segja kjósendunum, að það hefði þó verið athugað, að minnsta kosti. Sannleikur
inn hefir nefnilega verið sá, að undanfarin ár hefir þingið alls ekki þorað að leggja út í endurskoðun launalaganna, vegna þess, að þá hefði orðið að hækka föstu launin til mikilla muna, um leið og dýrtíðaruppbótin væri felld niður. En að þvílíku þorði enginn, að undanteknum fáum þm., að eiga frumkvæði, vegna kjósendanna. Þess vegna býst ég við, að það verði ofan á að vísa þessu máli til nefndar, en þess er ég fullviss, að það mun ná fram að ganga, svo sem og vera ber. Það væri óhæfa, og enda óhugsandi með öllu, að þingið færi nú að taka upp aðra meðferð þessa máls, án nokkurs frekari undirbúnings. Það er þess vegna ekkert annað en yfirskin, vegna kjósendanna, að vera að vísa þessu máli til n., en að öðru leyti er ekkert við því að segja í sjálfu sér.
Hv. 3. landsk. gaf tilefni til langra umr., sem verða sennilega að bíða betri tíma. Hann sagði það aftur og aftur, að allir þyrftu að spara. Það væri eina lækningin. Og hann hélt því fram, eins og íhaldsmanna er háttur, að byrja ætti á því að þrýsta niður kaupgjaldinu. Hann sá ekkert annað ráð út úr kreppunni. Minntist ekkert á það að hagnýta betur atvinnugreinarnar, með því að skipuleggja sölu afurða og auka á þann hátt arðsemi atvinnufyrirtækjanna í landinu, án þess að lækka kaupgjaldið. Hv. þm. virðist ekki fylgjast vel með þeim breytingum í atvinnuháttum þjóðanna nú á dögum, sem miða að því að auka nýting atvinnufyrirtækjanna og koma þeim í betra horf. Það eina, sem hv. þm. sér til viðreisnar atvinnulífinu, er lækkað kaup. En þetta er ekkert annað en slagorð, sem nú er að verða úrelt, jafnvel hjá kapitalistum. Hv. þm. ætti að bregða sér til Ameríku, sem er Gósenland kapitalismans, og sjá, hvernig þar er litið á þessa hluti. Þar eru þeir ekki á því að lækka kaupið. En Þetta lætur ef til vill vel í eyrum manna uppi til sveita, svona rétt fyrir kosningarnar, en það bætir ekkert úr erfiðleikunum. Það, sem veldur örðugleikum atvinnuvega okkar nú, er ekkert annað en erfiður markaður og skipulagsleysi afurðasölunnar. Þetta eru meginorsakir kreppunnar hjá okkur, en ekki of hátt kaupgjald.
Hv. þm. mætti einnig vel athuga það, hverjar afleiðingar lækkun kaupgjalds hefði fyrir þjóðfélagið og fyrir einstakar atvinnugreinir í landinu. Afleiðingarnar eru mjög tilfinnanlegar fyrir ríkissjóð, en sérstaklega kæmi hin minnkandi kaupgeta alþýðunnar fram í versnandi markaði landbúnaðarafurða innanlands. Þessu mætti hv. þm., sem er bóndi, vel gefa gætur. Það er nú svo um afurðir bænda, að þær eru í mjög háu verði hér innanlands, og það væri full ástæða til þess að reyna fyrst að fá þær svolítið niður, til þess að reyna að minnka dýrtíðina. Innlendar landbúnaðarvörur eru í miklu hærra verði en hægt væri að fá þær erlendis fyrir, ef ekki væru verndartollar til þess að útiloka samkeppnina. Ég bendi hv. þm. aðeins á þetta, sem eina hlið á málinu, en þær eru vissulega margar, þótt hann virðist ekki geta séð nema þessa einu hlið, lækkun kaupgjaldsins.