26.02.1931
Efri deild: 10. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í D-deild Alþingistíðinda. (561)

30. mál, dýrtíðaruppbót

Jón Þorláksson:

Þessar umr. hafa sveigzt inn á kaupgjaldsmálin. Var það hv. 3. landsk., sem byrjaði þann leik, og síðan tók hv. 2. landsk. við. Skal ég ekki vera að blanda mér inn í deilur þeirra, en úr því að farið var út í þetta mál á annað borð, og þó sérstaklega vegna ræðu hv. 3. landsk., þykir mér rétt að ryfja upp gang þessara mála síðustu 5 árin.

Hv. 3. landsk. taldi brýna nauðsyn á því, að almennt kaupgjald lækkaði. Skal ég engan dóm á það leggja, hvort þetta er rétt. Hér er um margþætt mál að ræða.

Ég vil byrja með því að minna á það, að í árslok 1925 náðust samningar með félögum verkamanna og atvinnurekenda um það, að kaupgjaldið skyldi lækka eftir dýrtíðarvísitölunni, á meðan þeir samningar væru í gildi, sem þá var fallizt á. Þetta var eðlileg afleiðing gengishækkunarinnar árið 1925, þar sem búizt var við lækkuðu vöruverði næsta og næstu ár. Þetta varð einnig, og í skjóli þessa samkomulags var vinnufriður í landinu 3 næstu ár. Árið 1928 segja verkamenn upp þessum samningum. Við því var auðvitað ekkert að segja. Þeir þóttust bera skarðan hlut frá borði, þar sem kaupgjaldið væri ekki nógu hátt. Hafði það þó ekki lækkað nema eins og samningar stóðu til. Leit nú út fyrir miklar deilur, eins og kunnugt er og eðlilegt var, þar sem hér áttu hlut að máli aðilar, sem báðir stóðu á verði fyrir mikla þjóðarhagsmundi. Annarsvegar félag verkamanna, sem fór fram á meira kaup, og hinsvegar félag atvinnurekenda, sem stóð á verði fyrir því, að kostnaður af rekstri fyrirtækjanna yrði ekki meiri en þau gátu borið.

Deilan hafði ekki staðið lengi, þegar núverandi hæstv. forsrh. greip inn í hana á alveg óvenjulegan hátt, með því að úrskurða, að sjómennirnir á skipum Eimskipafélagsins skyldu fá sínum kröfum framgengt og ríkissjóður greiða það, sem atvinnurekendur ekki vildu ganga inn á að greiða. Þessi úrskurður hæstv. forsrh. þýddi 15% hækkun á kaupi þessara sjómanna, og þegar þeirri deilu var á þennan hátt ráðið til lykta, fór það að vonum, að kaupgjald annara verkamanna yfirleitt hækkaði hér ámóta við það, sem það hækkaði á þessu sviði, þar sem kauphækkunin beinlínis var ákvörðuð af þeirri stj., sem hv. 3. landsk. styður.

Ég dreg þetta fram til þess að benda á, að svo virðist, sem hús þeirra á framsóknarmanna sé sjálfu sér sundurþykkt, þar sem hv. 3. landsk. þykir nú brýn nauðsyn til að lækka kaupið, en það hinsvegar er nú eins og það var ákveðið af stj. í ársbyrjun 1929. Aðeins hefir kauphækkunin breiðzt út til fleiri starfsgreina. Ég geri ráð fyrir því, að eitthvað sé bogið við það, þegar svo ærstæðir aðiljar sem hv. 3. landsk. og sú stj., sem hann styður, fyllast sundurþykkju. Að órannsökuðu máli undirskrifa ég það ekki hjá hv. 3. landsk., að nauðsynlegt sé að lækka kaupið. Ég mun geyma mér minn dóm til fyllri rannsóknar, ef svo skyldi til bera, að um minn dóm yrði spurt um það efni.

Þá vil ég drepa nokkrum orðum á önnur atriði. Ég býst við því, að það sé rétt hjá hv. 3. landsk., að húsaleigan hér í Rvík sé hærri en hún ætti og þyrfti að vera. En það er aðeins til eitt ráð til að bæta úr því, og það er, að framleitt sé svo mikið af húsnæði, að ekki verði skortur á því. Er hægt að ráða það af ýmsu, t. d. auglýsingum í blöðunum, að nú er komið nálægt því, að svo mikið sé byggt hér, að framboð á húsnæði sé meira en eftirspurnin. En þá kemur fjárkreppan til sögunnar, sem steðjar að bæði innan og utan frá, má segja, og er nú helzt útlit fyrir, að byggingarvinna stöðvist hér í bænum. Ef svo er, sem ég býst við, að fólkinu fjölgi hér fremur en hitt, en allar byggingar stöðvast, steðjar að nýtt húsnæðiseklutímabil. Það, sem þarf að gera til þess að ráða bót á þessari háu húsaleigu er að stýra málunum svo, að ekki þurfi að hætta að byggja, þó að kreppi að á atvinnusviðinu. Ef ekla er á húsnæði, ráða engar reglur við það, að leigan heldur áfram að vera há.