26.02.1931
Efri deild: 10. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 99 í D-deild Alþingistíðinda. (565)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Jón Þorláksson:
Það var nú svo sem auðvitað, að hæstv. stj. væri ekki varnarlaus, úr því að hæstv. fjmrh. var í deildinni. Hann var að reyna að afsaka þá kauphækkun á Eimskipafélagsskipunum, sem stj. var völd að 1928, eftir þriggja ára vinnufrið. En ástæður hæstv. ráðh. voru næsta lítilvægar. Hann kvað Norðurland hafa verið í hættu statt sökum siglingaleysis, ef kaupið hefði ekki verið hækkað. Þetta er auðvitað ekkert annað en fyrirsláttur. Það var og er nóg til af skipum í heiminum, og alstaðar hægt að fá skip, ef þörf hefði verið á siglingu til Norðurlands. Stj. gat bjargað Norðurlandi á allan annan hátt en hækka kaupið, ef hún hefði kært sig um.
Heldur þótti mér kenna hlutdrægni hjá hæstv. fjmrh., er hann komst svo að orði, að Eimskipafélagsstj. hefði virzt ætla að stöðva skipin. Ég get ekki séð, að fremur beri að kenna félagsstj. um stöðvun skipanna en skipshöfnunum, sem gengu í land. Hlutlaus frásögn mundi vera á þá leið, að skipin hefðu stöðvazt sökum kaupgjaldsdeilu.
Eins og hæstv. fjmrh. skýrði frá, bauðst ríkisstj. í fyrstu til að hækka styrkinn til Eimskipafélagsins um 11 þús. kr. Því var hafnað af félagsins hálfu, og þá greiddi ríkið skipshöfnunum uppbót í fimm ársfjórðunga. Stj. Eimskipafél. leyfði, að framkvæmdarstjóri þess úthlutaði þessu framlagi. Þegar þessir fimm ársfjórðungar voru á enda voru gerðir nýir samningar. Stj. Eimskipafél. samþ. þá að greiða þetta kaup, enda hafði þá hækkað kaupgjald á fiskiflotanum í Rvík, og það var einnig stj. að nokkru leyti að þakka. Ég er ekki að sakast um þetta, því að ég er þeirrar skoðunar, að kaupgjald eigi að vera svo hátt, sem atvinnuvegirnir geti framast greitt. En mér þykir einkennilegt, að þegar stj. er nýbúin að grípa til óvenjulegra ráða til að hækka kaupið, þá skuli heitustu fylgismenn hennar standa upp og telja hina mestu þjóðarnauðsyn, að kaupið lækki.