12.03.1931
Efri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 103 í D-deild Alþingistíðinda. (569)

30. mál, dýrtíðaruppbót

Frsm. minni hl. (Ingvar Pálmason):

Hv. frsm. meiri hl. gat þess, að sér þætti það miður, að ég gat ekki orðið meiri hl. samferða um þessa till. Ég ætla, að ég skilji ástæðuna fyrir því. En ég hefi sjálfur valið þessa leið, því að ég álít hana rétta. Ég hefi vikið að því í nál., að tildrögin til þess, að slík till. kom fram á þingi 1929, muni hafa verið þau, að þingið hefir fundið til þess, að nokkur hluti embættismanna væri of lagt launaður. En þegar málið er skoðað ofan í kjöl, hljóta allir að viðurkenna, að það, sem gert hefir verið f launamálinu, er í raun réttri engin réttlæting á því atriði. Mismunurinn milli launa embættismanna ríkisins mundi haldast hlutfallslega eins, og þó ollu heldur aukast. Það má segja, að það sé bót fyrir mann, sem hefir ekki nema 2 þús. kr. í laun, uppbótin verður 200 kr. Ja, það er ekki hægt að neita því, en hvað leiðir svo aftur af því? Það, að, maður, sem hefir t. d. 4500 kr. laun, fær 450 kr. uppbót. Ég sé ekki betur en í raun og veru sé með þessari till. verið að gera mismun launakjaranna meiri en nú er. Því tel ég þá braut, sem þingið hefir gengið inn á, mjög óheppilega, því að fyrst og fremst næst ekki það réttlæti, sem nást á, og þar með er tekið fé úr ríkissjóði að óþörfu. Það er viðurkennt af hv. frsm. meiri hl., að sá útgjaldaauki fyrir ríkissjóð, sem leiðir af þessari till, muni vera yfir 200 þús. kr. Ég fullyrði, að hann muni vera um 250 þús. kr., en ég skal játa, að ég get ekki að svo stöddu fært tölur til sönnunar þessu. Það eru svo margir, sem fá uppbót á launum sínum, og er því ákaflega seinlegt að telja það allt saman. En eftir embættismannalista, sem mætti telja aðgengilegan, verður þessi upphæð fullar 200 þús. kr., eða allt að því ¼ millj. — Það er nú, eins og ég hefi bent á, augljóst, að menn með lágum launum fá litla uppbót, en mestur hluti uppbótarinnar lendir hjá mönnum, sem að mínu áliti hafa sæmileg laun. Ég teldi nær að veita hinum lægst launuðu nokkru hærri uppbót en till. fer fram á, en hinum betur launuðu enga, fram yfir það, sem vísitala sýnir, og gæti þá ríkissjóður sparað að nokkru það fé, sem kemur til útgjalda með þessari till. og varið því til einhvers annars, sem ég teldi nauðsynlegra. Ég get nefnt dæmi, sem ég þekki, og af því, að dæmið snertir eina fjölmennustu stétt þessa lands, vil ég draga það fram nokkru nánar.

Ég nefni prest með 2000 kr. byrjunarlaunum, en eins og allir vita hækkar aldursuppbót presta eftir öðrum hlutföllum en annara embættismanna. Það er ekki nóg, að þeir hafi lág laun, heldur þurfa þeir 15 ár, þar sem aðrir embættismenn þurfa 10 ár, til að komast upp í hæst launaða taxtann. Ef tekjur þessa prests eru 2 þús. kr., hefir hann eftir núgildandi lögum 30% dýrtíðaruppbót; það verða því 2600 kr. laun. Í aukatekjur hefir hann 600 kr., alls verða laun hans því 3200 kr. Ég viðurkenni, að þetta eru lág laun, allt of lág. Svo ætla ég að taka lækni, sem er búinn að þjóna í full 10 ár og er því kominn í hæst launaða taxtann og hefir 4000 kr. Hann fær dýrtíðaruppbót eftir sömu gildandi lögum og presturinn og hefir því 5200 kr. Auk þess hefir þessi læknir 6000 kr. í aukatekjur. Hann hefir því í laun yfir 11 þús. kr. Svo skulum við sjá, hvernig þessi till. verkar á þessa tvo embættismenn. Hún verkar þannig, að presturinn fær 200 kr. launahækkun, en læknirinn 400 kr. Þetta er það, sem ég tel slæma ráðstöfun á fé ríkisins, að hækka laun embættismanna að óþörfu til þess að geta veitt öðrum, sem virkilega þurfa launabót, örlitla úrlausn. É hefi því álitið, að ekki væri rétt að samþykkja þessa till. Ég hygg, að þó að mér hafi ef til vill ekki tekizt að setja það greinilega fram, þá hafi mér þó tekizt að gera það svo greinilega, að hv. þdm. sé ljóst, af hverju ég er mótfallinn till.

Ég gæti nú að mestu látið mínu máli lokið, en ég vil samt, áður en ég sezt niður, taka fáein atriði, sem komu fram í framsöguræðu hv. frsm. meiri hl. Það fyrst, að hann komst að sömu niðurstöðu og ég, að þessi þál.aðferð, sem tekin var 1929, hafi komið fram til að reyna að jafna mismun á launum embættismanna. Ég lít svo á, að till. hafi frekar orðið til ójafnaðar en jafnaðar. Ég get ekki látið vera að minnast á það, sem hv. frsm. meiri hl. tók fram, að grundvöllurinn, sem hafður er til að ákveða dýrtíðaruppbót embættismanna, væri ekki þannig, að réttmætt væri að byggja á honum. Ég skal ekki segja neitt um það. Má lengi um það deila og verður erfitt að finna það, sem er fullkomlega réttmætt. En grundvöllurinn undir dýrtíðaruppbótinni er sízt fjær lagi nú en hann var 1928, því að ég hygg, að það hafi borið meira á því, að þessi grundvöllur væri varhugaverður á fyrstu árunum eftir að dýrtíðaruppbótin kom á. Ég hygg, að grundvöllurinn hafi smám saman komizt í fast horf á áratugnum 1920–30. Ég ætla ekki að fara út í það, að grundvöllurinn undir vísitölunni sé ekki réttmætur. Hún er sá mælikvarði, sem við höfum notað til að finna þær upphæðir, sem mönnum ber vegna hærra verðlags heldur en 1914.

Þá vil ég víkja að því, sem hv. frsm. sagði, að þessi uppbót munaði nokkuð sérstaklega miklu fyrir þá, sem lagt eru launaðir, en ég hefi sýnt fram á, að það er einmitt fyrir þá, sem hátt eru launaðir, að hún munar nokkru. Ég sé ekki ástæðu til að taka undir það með hv. frsm. meiri hl., að málið sé í sjálfu sér einfalt. Það er því aðeins einfalt, að málið sé skoðað grandgæfilega. Það er einfalt að taka vissar tölur og reikna út frá þeim. En ef málið ætti að ná því fyllsta réttlæti, sem hægt er, þá verður að fara aðrar leiðir.

Ég held, að á meðan ekki er hægt að taka til endurskoðunar laun embættismanna, sé réttast að greiða dýrtíðaruppbót eftir því, sem vísitala hagstofunnar ákveður. En að fara að greiða öllum embættismönnum hærri dýrtíðaruppbót, er að mínu viti óeðlileg aðferð. Mér finnst, að ef þingið féllist á það, þá væri miklu nær að bæta einhverju af þessari upphæð beinlínis á laun þeirra embættismanna, sem lægst eru launaðir. Þó að það væru ekki nema 60–80 þús., kr., þá væri þeim mikill styrkur að því.

Ég hefi ekki búið mig undir að koma með brtt. í þessa átt, vegna þess að ég álít það ekki tímabært fyrr en til umr. kemur hér á þingi framlenging á lögum um dýrtíðaruppbót embættismanna. Þá á þetta að koma til athugunar, en ég sé ekki ástæðu til að koma fram með tillögur í þá átt fyrr.

Ástæðan til þess, að ég vil ekki samþ. þessa till., er alls ekki sú, að ég vilji ekki veita hinum lakast launuðu embættismönnum neina launahækkun, heldur af því, að mér finnst að svo miklir annmarkar fylgi till., að ég álít ekki fært að ganga þá leið.

Hv. frsm. meiri hl. var að tala um, hvort ég vildi gera fjmrh. ábyrgan fyrir þeirri upphæð, sem hann greiðir í dýrtíðaruppbót fram yfir það, sem lögin ákveða. Það vil ég ekki, en því fyrr sem við stingum fótum við á þessari braut, því betra. Brautin er hál, og þó að við á undanförnum þingum höfum ef til vill gert eitthvað í þessu efni, sem ekki er rétt, þá þurfum við ekki að halda áfram nú á þeirri braut.