12.03.1931
Efri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 111 í D-deild Alþingistíðinda. (574)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Jón Þorláksson:
Ég ætti víst að vera upp með mér af því, að hv. samþm. minn (JónJ) lítur svo a, að þessi hluti umr. megi ekki fara svo fram, að menn fái ekki að heyra álit mitt af mínum eigin vorum. Það er þó venjulegt, að nm. láti sér nægja það, sem frsm. segja um afstöðu þeirra. Hv. frsm. meiri hl. hefir nú skýrt rétt frá afstöðu minni í þessu máli, og ætlaði ég því ekki að taka til máls. Aðeins einu atriði get ég bætt við, sem hv. frsm. meiri hl. mun hafa gleymt, þó að það að vísu liggi í augum uppi. Ég gat þess við hann, að þar sem almennt kaupgjald er nú hærra en það var árið 1928, teldi ég ekki rétt að vera á móti þessari till. hæstv. stj., því að ef hún er felld, verða laun embættismanna lægri þetta ár en árið 1928. Mér finnst ekki rétt að greiða starfsmönnum hins opinbera minna kaup en árið 1928, meðan aðrir hafa hærra kaup en þá. Ég skal taka það fram, að ég fylgi hér þeirri málvenju að kalla kaupgreiðslur jafnar, meðan þær breytast ekki að krónutölu, þó að einhverjar aðrar ástæður breytist. Verkafólk fær fleiri krónur í kaup nú heldur en 1928, en ef þessi till. er felld, fá starfsmenn ríkisins færri krónur en þá. Þetta finnst mér nægileg ástæða til að samþ. till., að því viðbættu, að allir eldri embættismenn, sem er goldið eftir launalögunum frá 1919, hafa yfirleitt minni laun heldur en þeir, sem vinna hja einstaklingsfyrirtækjum.
Þeim, sem hlotið hafa ný embætti eftir 1919, hefir yfirleitt verið séð fyrir miklu betri launakjörum. Sannar það, að Alþingi telur ekki launalögin frá 1919 réttlát.
Hv. samþm. minn (JónJ) var að reyna að draga hér inn í umr. óskylt mál. Vildi hann fá að vita, hvort ég áliti ekki, að almennt kaupgjald þyrfti að lækka. Ég get sagt það alveg eins og það er, að ég er ekki atvinnurekandi á þann hátt, að hækkun og lækkun á almennu kaupgjaldi við annan atvinnurekstur hafi nokkur veruleg áhrif á rekstrarafkomu mína. Og ég játa, að ég er ekki svo kunnugur atvinnurekstri annara, að ég geti alveg óviðbúinn og án allrar athugunar og rannsóknar á því sviði, kveðið upp dóm um það, hvort kaupgjald þarf að lækka. Ég vil engin ummæli láta falla um það efni án þess að hafa fyrst sjálfur myndað þeim þann grundvöll, að ég geti staðið við þau.
Hitt sé ég eins og aðrir, að annar stærsti og elzti atvinnuvegur landsmanna á nú í miklu basli, sem m. a. kemur fram í því, að honum virðist ókleift að kaupa vinnu fyrir sama verð og aðrir atvinnuvegir greiða fyrir hana. En á því einu vil ég ekki byggja allsherjardóm um það, hvort kaupgjald þarf að lækka. Er því síður ástæða til þess, þar sem skoðanir virðast mjög skiptar um þetta efni hjá þeim mönnum, sem sérstaklega þykjast bera hag landbúnaðarins fyrir brjósti, eins og t. d. maðurinn, sem vegna aðstöðu sinnar átti mestan þátt í kaupgjaldshækkuninni 1929. Hafi hæstv. forsrh. þá álitið kauphækkun banatilræði við landbúnaðinn, hefir spjóti verið stefnt að þeim atvinnuvegi úr þeirri átt, sem menn hefðu sízt átt að eiga þess von, eftir allt það, sem hæstv. forsrh. hefir talað og skrifað.
Ég vil ráða hv. 3. landsk. til að beina heldur til hæstv. atvmrh. þeirri spurningu, sem hann áðan beindi til mín, hvort kaupgjald þarf að lækka. Honum ber embættisskylda til að fylgjast með í slíkum málum og kynna sér þau. Álíti hann nú, að kaupgjald þurfi að lækka, finnur hann vonandi eins handhægt ráð til þess eins og hann fann til að láta kaupgjaldið hækka 1929, þegar hann lét greiða úr ríkissjóði það kaup, sem aðrir vildu ekki greiða.