12.03.1931
Efri deild: 22. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í D-deild Alþingistíðinda. (578)
30. mál, dýrtíðaruppbót
Jón Jónsson:
Hv. 2. landsk. hélt, að ég væri að sjá ofsjónum yfir félagsskap hans við hv. 1. landsk. Ég sé engum ofsjónum yfir því, heldur samgleðst honum fyrir það, að hann er nú í bandalagi við þetta fræga Íhald, sem hann annars setur sig sjaldan úr færi með að skamma.
Hv. þm. hélt, að ég væri að fara í einhverja bónorðsför til hv. 1. landsk. Það er hreinn misskilningur. Ég vildi aðeins fá álit hans um eitt atriði, sem hann svo vildi ekki svara.
Hv. 2. landsk. sagði það, að nær væri að stuðla að því að bæta atvinnuvegina en að heimta kauplækkun. En það er nú alltaf verið að leitast við það hér á þingi að bæta atvinnuvegina, a. m. k. er það svo með minn flokk. En þetta kemur ekki undir eins í ljós, og meðan svo er, verða vinnuveitendur að haga sínum kröfum eftir því, sem tíminn þá og þá heimtar. Þess vegna er það ekki ófyrirsynju, ef atvinnurekendur halda, að kaupið eigi að lækka, þegar nauðsyn krefst þess. Og einmitt í samræmi við það, er það sjálfsögð skylda löggjafarvaldsins að auka ekki laun embættismanna fram yfir það, sem verið hefir. Þess vegna eru þessar till. algerlega óréttlátar.