14.03.1931
Efri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 128 í D-deild Alþingistíðinda. (590)

30. mál, dýrtíðaruppbót

Fors.- og atvmrh. (Tryggvi Þórhallsson):

Það eru aðeins tvo atriði, sem ég vildi láta koma fram út af síðustu ræðu hv. 1. landsk. Hann benti á það, sem ég er honum sammála um, að reglan á að vera sú, að hlutaðeigendur, vinnuveitendur og verkamenn, eigist einir við. En einmitt í þessari togaradeilu var það svo. Ég var á engan hátt að trana mér fram, heldur var það í samráði við báða aðila og að ósk, að ég fór að skipta mér af deilunni. Hitt vil ég og taka fram, að þó að það væri óviðeigandi af hv. 1. landsk. að láta ummæli sín falla eins og þau féllu, og gátu ekki skilizt að ættu við annað en togaradeiluna, þá er enn meira óviðeigandi að draga Eimskipafélagið hér inn í. En annars er ástæðulaust að þegja yfir því, að seinasti þátturinn í þessari deilu var sá, að hv. 1. landsk. kom heim til mín ásamt einum samherja sínum, til þess að biðja mig að liðka deiluna.