14.03.1931
Efri deild: 24. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í D-deild Alþingistíðinda. (594)

30. mál, dýrtíðaruppbót

Frsm. minni hl. (Ingvar Pálmason):

Ég hafði ekki hugsað mér að taka til máls við síðari umr. þessarar till., en það gerði trompið, sem hv. þm. Snæf. þóttist finna og spilaði út, að ég vil segja nokkur orð.

Ég sé ekki annað en eftir að fyrri umr. hefir farið fram með ró og spekt, og hvorirtveggja hlutaðeigendur hafa átt þess kost að færa rök fyrir máli sínu, þá sé óþarfi að finna það upp, að þegar ég átti upptökin að því, að koma fram mótmælum gegn þessari till., þá hafi það verið gert af þeirri ástæðu, að það eigi að notast sem meðmæli við kosningarnar, sem í hönd fara. Mér hefir aldrei dottið í hug að nota þetta sem kosningabeitu, enda er óvíst, hvort ég eða hv. þm. Snæf. stöndum hollum fæti við næstu kosningar. Ég færði full rök fyrir afstöðu minni, og slíkar getsakir eru með öllu ástæðulausar og benda í þá átt, að reynt sé að finna upp ný og ný meðul til þess — ef ekki að sverta andstæðingana — þá að gera lítið úr þeim. Slíkt tel ég algerlega óviðeigandi.