09.04.1931
Efri deild: 42. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í D-deild Alþingistíðinda. (637)

258. mál, lokun Íslandsbanka

Flm. (Erlingur Friðjónsson):

Síðan ég talaði hafa orðið miklar umr. um málið, og að mestu hafa þær hnigið í þá átt, að till. mín væri ekki óþörf hvað snertir að reyna að fá upplýsingar viðvíkjandi ástæðum fyrir því að Ísl.banka var lokað. Virðist því till. hafa verið þörf í þeim efnum að koma á hreyfingu í þessu máli og að komið gæti fram ósk frá þessari hv. d. um það, að lögð yrðu fyrir þingið plögg viðvíkjandi því. Það, sem komið hefir fram í þessu máli gegn því, sem ég sagði hér, hefir meira verið borið fram af óróa og heitu blóði, eins og t. d. af hv. 4. landsk., en að hrakið hafi verið það, sem ég sagði í þessu máli. Hv. 4. landsk. kannast við, að lokun Íslandsbanka hafi valdið þjóðinni stótapi. Ég geri ráð fyrir, að hann geti fallizt á, að það sé ekki allt komið fram enn og geti orðið meira í framtíðinni. Annars snerist ræða hans mikið á þá sveif að skjóta örvum að stj. og afskiptum hennar í þessu máli. Ég hefi ekki sérstaka ástæðu til að bera af henni þau örvaskot, sem hann beindi til hennar. En ég vil þó segja það, að ég tel ummælin um bolsivikka í sambandi við aðgerðir stj. í þessu máli að því leyti ómakleg, að mitt álit er, að stj. hefði öllu meira átt að taka sér til fyrirmyndar rússneska bolsivikka en hún gerði í þessu máli. Þeir hefðu sennilega farið aðra leið og þjóðinni hollari í þrotabúsmálum Íslandsbanka.

Hv. 4. landsk. var að tala um Gróusögur, sem ég færi með, og að ég væri að hælast yfir óhöppum, sem vissir viðskiptamenn bankans hefðu orðið fyrir í sínu starfi. Ég tel það ómaklega mælt í minn garð, að ég sé að hælast yfir slíku á nokkurn hátt. Ég fæ ekki betur séð en að nauðsyn sé á að draga í ljós, hver viðskipti bankinn hefir haft við suma sína viðskiptamenn. En nú vill svo vel til, að hv. 4. landsk. hefir sérstaka aðstöðu vegna rannsóknarinnar í fyrra til að hrekja orð mín, ef hægt er, um þessa viðskiptamenn Íslandsbanka. Og einnig situr her í d. einn úr bankaráði Íslandsbanka, hv. 1. landsk., sem hefir sennilega eins viljað leiðretta eitthvað af því, sem ég sagði um viðskiptamenn bankans, eins og leiðretta annað atriði viðvíkjandi reikningum bankans. Ég kem síðar að því atriði. Ég verð að álíta, að það, sem ég sagði viðvíkjandi þessum viðskiptamönnum bankans, hljóti að vera rétt, meðan þessir hv. þm. ekki mótmæla, sem hafa slíka sérstaka aðstöðu til að gefa upplýsingar í þessu máli. Og Gróusögur sagði hv. þm., að ég hefði farið með. (PM: Ég nefndi engar Gróusögur). Hann hefir þá ekki tekið eftir því, sem hann sagði, því að sálarástand hans hefir ef til vill verið þannig, að hann hefir vel getað gleymt einhverju eða ekki tekið eftir því, sem hann sagði. Vilji hann hinsvegar nú taka aftur ummæli sín um Gróusögurnar þá verður ekki um það fengizt. Ég benti ekki á það þá, en ætla að gera það nú, að aðeins 2 þessir viðskiptamenn bankans, sem ég talaði um, að eytt hefðu miklu fé fyrir bankanum, hafa eytt meiru en nemur öllu hlutafé bankans. Þeir Copland og Co. og Stefán Th. Jónsson hafa skuldað bankanum 4800 þús. kr., sem afskrifað hefir verið að mestu leyti. Að sönnu mun ekki enn vera búið að afskrifa 300 þús. kr. af skuld Coplands og Co., en þess mun varla geta orðið langt að bíða, að sú skuld verði einnig felld niður með þeim 2½ millj., sem áður eru afskrifaðar. Er ástæða til að minnast á slíka viðskiptamenn eins og þá, sem eyða meiru en öllu hlutafé jafnstórs banka og Íalandsbanki var.

Þessi ræðumaður, hv. 4. landsk., talaði um það, að ekki væri hægt að fela stj. rannsókn í þessu efni. Mig furðaði á því, hvað kemur fram sterk trú þessa ræðumanns á því, að stjórnarskipti séu ekki á næstu grösum. Það var auðheyrt, að hann átti við núv. stj. Hv. 1. landsk. sló þó varnagla við þessu, er hann sagði, að núv. stj. væri ekki trúandi til að gera þetta. Mér skilst, að hann trúi betur væntanlegri stj. til þess.

Það var hv. 4. landsk., sem beindi að mér slíkum ummælum, að ræða mín væri fremur óþörf og ekki byggð á miklum sannindum. En ég vildi spyrja, hvort það sé ekki satt, að hann hafi rannsakað hag Íslandsbanka. Ég þarf náttúrlega ekki að spyrja, því hann segir sjálfur, að hann hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að bankinn ætti fyrir skuldum. Ég vil líka spyrja hann, hvort hann viðurkenni ekki, að fram hafi komið tap síðan bankanum var lokað, sem nemur rúmlega 4 millj. Og þar með er fyllilega sannað, að rannsókn hans var fremur ómerkileg. Og þar sem hann hefir ekki komið fram með önnur andmæli enn viðvíkjandi ummælum mínum um viðskiptamenn bankans, en að ég sé með Gróusögur, án þess að hrekja nokkuð af því, sem ég hefi sagt, þá tel ég þegar fengnar sannanir fyrir réttri frásögn minni, vegna sérstöðu hv. 4. landsk. til þess að geta leiðrétt, ef að einhverju leyti væri ekki rétt frá skýrt hjá mér.

Hæstv. fjmrh. tók vel í það, að leggja fyrir þingið skýrslur þær, sem hann hefði fram að leggja, og minntist hann á sérstakar skýrslur í þeim efnum, sem mér skildist hann gera ráð fyrir, að mér væru kunnar. Ég hefi ekki kynnt mér þessar skýrslur á nokkurn hátt og ekki átt kost á því. En tilvitnanir, sem hefi stuðzt við, eru ummæli hæstv. forsrh. í Nd. fyrir nokkrum dögum. Hann talaði um það, hvað mikið væri búið að afskrifa síðasta ár af skuldum Íslandsbanka og tilgreindi þetta sem hreint tap, orðið á útistandandi skuldum bankans. Hvað viðvíkur ummælum hæstv. fjmrh. um það, að ekki sé ástæða til að óttast um hag Útvegsbankans, vegna þess að þessar afskriftir hafi verið gerðar á skuldum Íslandsbanka síðasta ár, get ég tekið fram, að mér hefir ekki dottið í hug að efast um það, að Útvegsbankinn væri sæmilega vel stæður, þó orðið hafi að afskrifa jafnmikið og raun er á af skuldum Íslandsbanka. Mer er ljóst, að þó þessar afskriftir verði gerðar, þá er hlutafé hans miklu meira en það fé.

Hæstv. dómsmrh. gaf þær upplýsingar, að 3 lögfræðingar væru farnir — að mér skildist á líkan hátt og ég vildi fá skýringu á — að athuga plögg Íslandsbanka. Mér virðist, að það ætti að vera tiltölulega létt fyrir stj. að leggja fyrir þingið, hvort sem hún vill fyrir þm. eða hreinlega þingið, skýrslu þessara þriggja lögfræðinga, þegar þeir hafa eitthvað að segja. Það getur verið vafamál, hvort eigi að gera skýrslurnar opinberar eða leggja þær fram fyrir þm. til skýringar á málinu fyrir þá eina. Ég skipti mér ekki af því. En ég tel ekki koma til mála að senda þær til þingnefndar, heldur til allra þingmanna. Ég held því fast við till. mínar um, að þær skýrslur séu lagðar fyrir þingið eða þm., sem kostur er á að fá í þessu leiða máli Íslandsbanka. Þar sem sumir þm., sem talað hafa, hafa talið nauðsynlegt, að fram kæmi skýrsla um það, hvernig ríkisstj. hefir hagað sér í þessu máli, þá er ekki síður nauðsynlegt að rannsaka, hvernig bankastj. hefir farið að ráði sínu. Ég geri ráð fyrir, að sú skýrsla, sem kemur, verði ekki hlutdræg og byggja megi á henni niðurstöður sem verði málinu að liði.