10.04.1931
Efri deild: 43. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í D-deild Alþingistíðinda. (641)

258. mál, lokun Íslandsbanka

Flm. (Erlingur Friðjónsson):

Þegar umr. var frestað í gær, lét hv. 1. landsk. það ótvírætt í ljós, að hann hefði lítið að segja, og hvatti til þess, að umr. héldi áfram, svo þeim mætti ljúka í gær. Nú er hann búinn að tala í röskan hálftíma, og lítur því út fyrir, að hann hafi sótt í sig veðrið í nótt. Hann hefir nú samt ekki sannað mér það, sem hann áleit, að ég hefði ekki farið rétt með í gær. Ég vil nú benda honum á, að eftir þessa hvíld hefði hann átt að geta komið betur undirbúinn en raun var á. Ég hefði sérstaklega óskað eftir því, að hann hefði komið með einhverjar sannanir, en svo var ekki. Verð ég því að álíta það sem sterk rök fyrir því, að ég hafi farið með rétt mál, þar sem hvorki hann né hv. 4. landsk. sýna svo mikið sem lít á því að koma með mótbárur, eftir sólarhrings undirbúning.

Þetta er að vísu mjög eðlilegt, jafnvel þótt ég hefði haft fróðleik minn úr blöðum landsins, sem hv. 1. landsk. vildi ekki telja sem beztar heimildir. Og þó hv. 1. landsk. hafi viljað vefengja sannleiksgildi þess, sem ég hafði fram að færa, þá held ég nú enn fast við það, sem ég áður hefi sagt í þessu máli. Enda býst ég við, að jafn glöggur maður á tölur eins og hv. 1. landsk. er, hljóti að hafa tekið eftir reikningum Coplands; Stéfans Th. Jónssonar og Sæm. Halldórssonar í Stykkishólmi, meðan hann var fulltrúi útlendu hluthafanna í bankaráði Íslandsbanka.

Ég held, að engin leið sé fyrir hv. þm. að skjóta sér undan því með þekkingarleysi sínu í þessu efni. Og þá er því síður ástæða til að vefengja orð mín, þegar hann getur ekki gefið neinar upplýsingar, er afsanni þau. Ég held, að hann hefði ef til vill getað gefið einhverjar upplýsingar viðvíkjandi sumum atriðum málsins, en hann hafi ekki viljað gera það.

Hv. þm. fór að afsaka töp Coplands. Gat þess, að hann árin 1920–'21 hafi keypt fisk fyrir 300 kr. skip., en ekki getað selt hann fyrir meira en 100 kr. Ég býst við, að þetta hafi ekki verið nema nokkurn hluta ársins. Verðfallið er að vísu dálítil afsökun, en hinsvegar nær engri átt að láta einn mann fá slíkt fé handa milli, er valdið getur jafngífurlegu tapi og raun hefir á orðið. Hann segir, að peningarnir hafi lent hjá verkafólkinu. Það vil ég efast um. Kaup verkafólks var ekki hærra yfirleitt þá, þó greitt væri svona hátt verð fyrir fiskinn. Enda tel ég mjög ótrúlegt, að verkafólkið hafi grætt á töpum Íslandsbanka, og svo mun vera um fleiri menn, en hinsvegar er nú svo komið, að verkafólkið á að fara að borga þessi töp bankans, ásamt öðrum töpum hans. Þessi töp koma fram á verkafólkinu í hærri sköttum, vegna þess að ríkissjóður hefir tekið á sig töp Íslandsbanka.

Hv. 1. landsk. vildi ekki taka mikið mark á því, sem í blöðum stæði. Ég tók samt svo eftir, að hann hefði sín rök úr blöðum. Hvort hann hefir verið að vitna í blaðgreinar eftir sjálfan sig, skal ég láta ósagt, en ég þykist muna það rétt, að ég hafi séð haldið algerlega hinu sama fram í sumum blöðum landsins og hann hefir haldið fram í þessu máli. Ekki veit ég, hvort hann var að „citera“ sjálfan sig.

Þá gaf hann það í skyn, að töp bankans væru fulltalin með þeim afskriftum, sem þegar hefðu verið gerðar, og virtist hv. 4. landsk. ganga út á þessa sömu braut. Og nú kom botnvitleysan í þessu. Þeir sögðu, að ekki þyrfti að búast við meiru tapi en 10%, þ. e. a. s. því, sem þeir telja nú fram komið. Auk þess telja þeir óverjandi að hjálpa ekki banka, sem ekki hefir tapað meiru en 10%. Ég vil nú efast um, að þjóðin sé svo heppin, að tapið sé ekki miklu meira en 10%. Nei, ég er ekki í vafa um, að það er miklu meira.