13.04.1931
Sameinað þing: 4. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í D-deild Alþingistíðinda. (654)
374. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forseti (ÁÁ):
Ég legg til, að fram fari ein umr. um till., og ef enginn mælir því í gegn, skoða ég það samþ. án atkvgr.
Umr. verður útvarpað, og skal ég geta þess, að í samráði við formenn flokkanna hefir reglunum verið breytt þannig, að í fyrstu umferð eru ekki 3 klukkutímaræður, heldur 6 hálftímaræður.