16.03.1931
Neðri deild: 25. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í C-deild Alþingistíðinda. (661)

4. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Sigurður Eggerz:

Hvað snertir ræðu hv. frsm. meiri hl. get ég vísað til þess, sem ég hefi sagt áður, og sé ekki ástæðu til að endurtaka þau rök, sem þar eru færð fram. Hvað snertir ummæli hans um ákvæði, sem ég taldi, að kæmi í bága við stjskr., þá sagði hann fyrst, að fjárl. væru lög. Ég held, að það megi ganga út frá því, að fjárl. eru ekki það, sem eftir lagavísindum er kallað lög. Stjskr. sýnir mismun á lögum og fjárlögum. Hitt atriðið er veigameira, að þetta ákvæði er í öðrum lögum en fjárl. Ég vildi benda á, að ef það er rétt, að nægilegt sé að ákveða slíkt með öðrum lögum með tilvísun til fjárlaganna, þá má koma öllum sköttum, hækkunum þeirra og lækkunum, undir fjárlagaákvæði. Þannig mætti grafa undan því, sem er aðalmark ákvæðisins í stjórnarskránni. Ég vil taka fram, að í samráði við nokkra menn hér í d., sem gjarnan vildu íhuga till. betur, tek ég hana aftur til 3. umr.