24.03.1931
Neðri deild: 32. fundur, 43. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í C-deild Alþingistíðinda. (683)
4. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Haraldur Guðmundsson [óyfirl.]:
Ég get verið miklu stuttorðari en ætla mætti um þessar brtt. mínar á þskj. 209, því efni þeirra hefir þegar verið rætt.
Ég skal þá víkja að till. í þeirri röð, sem þær eru í á þskj. 209. Í 1. brtt., við 4. gr. frv. eins og það lítur út eftir 2. umr., hefi ég lagt til, að bætt væri við gr. fyrirtækjum bæjar- og sveitarfélaga. Þegar meiri hl. mþn. í skatta- og tollamálum gekk frá sínu frv., breytti hann gildandi lögum á þann hátt, að við þessa grein var bætt ríkisfyrirtækjum, sem skyldu vera skattfrjáls. Ég tel rétt, að sama gildi um fyrirtæki bæjar- og sveitarfélaga, eins og ég veit, að muni hafa verið. Ég hygg, að rafmagns- og gasveitufyrirtæki hafi ekki verið látin greiða tekjuskatt. úr því að ástæða þótti til að taka þetta fram um ríkisfyrirtæki, þá tel ég rétt, að það sé einnig tekið fram um fyrirtæki bæjar- og sveitarfélaga.
Þá er það 2. brtt., við 6. gr., og till. um, að 7. gr. falli burt. Efnið í brtt. er það, eins og hv. þm. sjá, að skatturinn hækkar töluvert og að sömu reglu er fylgt um skatt félaga og einstaklinga. Ennfremur er lágmark skattsins á hlutafélögum hækkað upp í 10% úr 5% og samvinnufélaga í 10% í stað 6%. Annað er ekki í þessari gr., sem sérstök þörf er að benda á.
Um skattupphæðirnar sjálfar get ég verið stuttorður. Ég hefi áður sýnt fram á hér í þessari hv. deild, eins og skatta-og tollalögum nú er háttað, að fjöskyldumaður, sem hefir 5 manns í heimili og 3 þús. kr. árstekjur, greiðir 10–11% í sköttum og tollum til ríkissjóðs, en maður, sem hefir 5. þús. kr. tekjur á ári og jafnmargt í heimili, þarf ekki að greiða nema milli 6 og 7%. Hann greiðir ekki nema 2/3 hundraðsgjalds á við hinn manninn, þann fátækari. Þetta er heimska og ranglæti. Einnig hefi ég sýnt fram á hér í d., að félag, sem hefir lítið hlutafé, greiðir of mikinn skatt eftir ákvæði 7. gr., borið saman við félag með meira hlutafé. Í mörgum tilfellum getur komið fyrir um 2 félög með mismunandi hlutafé og sömu skattskyldu tekjum, að annað greiði sjöfalt á við hitt. Smærra félagið greiðir margfalt hærri skatt en það stærra.
Að 7. gr. falli burtu er afleiðing af því, að skattstiginn er settur í eina grein. Þá er það 10. gr. frv., þar sem ég legg til um b- og c-liðina, að öðruvísi verði skipt milli þeirra innbyrðis. Ég kann illa við, að í b-lið sé talað um eignaaukning, er stafi af eftirgjöf skulda, þegar hinn liðurinn, c, nefnir sem tekjuliði lán og eyðslu höfuðstóls. Ég álít, að það eigi heima í sama lið, eftirgjöf skulda, eyðsla höfuðstóls og lántökur. Tel ég ekki rétt að flokka eins og hefir verið gert í frv. Auk þess hefi ég bætt við slysabótum og örorkubótum. Það er ekki réttlatt, að bætur, sem stafa af iðgjöldum, séu taldar til tekna, enda hefir það ekki verið svo, að brunabætur og lífsábyrgðarupphæðir hafi verið taldar til tekna.
Þá kem ég að 11. gr., um hvað draga megi frá tekjunum, áður en skatturinn er á lagður. Ég legg til, að b-liðurinn falli burt. Hann hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta: „Frá tekjum skal draga, áður en skattur er á þær lagður, tap á atvinnurekstri, er á skattárinu verður eða þá fyrst kemur í ljós“ . . o. s. frv. Nú segir 1. málsgr. þessarar gr., að frá tekjunum megi draga rekstrarkostnað allan, allan kostnað við öflun teknanna. Og í 8. gr. l. er talað um, hvað teljist til tekna; þar segir í þessari gr. 1. t. d.: „tekjur af landbúnaði, sjávarútvegi, siglingum, verzlun eða öðrum atvinnurekstri“. Nú fæ ég ekki betur séð en að þegar fylgt er ákvæði 8. gr. og frádrætti a-lið 11. gr., verði niðurstaðan annaðhvort tap eða gróði, eftir því hvort tekjurnar eru meiri eða minni en gjöldin. Niðurstaðan af framtalinu eða frádrætti a-liðs kemur fram annaðhvort sem tap eða hagnaður á atvinnurekstrinum. Það er rangt að taka upp regluna í b-lið, að frá megi draga auk þess tap á atvinnurekstri, eins og ætlazt sé til að draga tapið tvisvar frá. Ég skal taka dæmi til skýringar. Ég veit ekki betur en að bændur hafi tvennskonar framtöl, búreikninga og einkaframtal. Á búreikningana eru teknar allar tekjur og gjöld tilheyrandi búinu og niðurstaðan er svo færð inn á einkaframtalið, annarsvegar tekjurnar og hinsvegar gjöldin. Ef gjöldin eru meiri en tekjurnar, kemur fram lækkun á framtali manna; þar með er búið að taka tillit til tapsins. Ef ætti svo að fara að hafa nýjan lið sem tap á atvinnurekstri, þá er búið að reikna tapið tvisvar. Þess vegna legg ég til, að liðurinn falli burt.
Þá er það b-liður 5. brtt., að frá tekjum verkamanna, iðnlæðra manna og annara þeirra, sem eru félagar í stéttarfélögum, skuli draga félagsiðgjöld þeirra. Einnig, að draga skuli frá iðgjöld til sjúkrasjóða, styrktarsjóða og atvinnuleysissjóða, enda hafi iðgjöldin verið greidd að fullu á réttu gjaldari. nú er heimilt að draga frá iðgjöld lífsábyrgðar. Jafnsjálfsagt sýnist, að iðgjöld og félagsgjöld þeirra manna, sem tryggja atvinnu sína með því að vera í stéttarfélögum, séu skattfrjáls. Ég veit ekki betur en að öll tryggingariðgjöld séu skattfrjáls.
Það var rétt, sem hv. 1. þm. N.-M. tók fram. mér hafði sézt yfir, að í frv. stj. er gert ráð fyrir í 9. gr., að samvinnufélög megi draga frá lögboðið tillag til varasjóðs. — Ég vil benda hæstv. forseta á, að það er misprentun bæði í frv. og brtt. Þar stendur: „ Samkvæmt 20. gr. 1. nr. 30, 27. júní 1921“ o. s. frv. Ég held ég muni það rétt, að lögin eru nr. 36, ef hæstv. forseti vildi athuga það. — Það, sem villti mig í þessu efni, er það, að í 11. gr. frv. er einnig gert ráð fyrir því, að samvinnufélögin dragi frá 1/3 af því, sem þau leggja til varasjóðs, eins og hlutafélögum nú er heimilt og gert er ráð fyrir í frv. Mér finnst dálítið langt gengið hjá flm. í þessu efni. Fyrst að skilja undan skatti lögboðið tillag til varasjóðs og svo að bæta við, að 1/3 af öðrum framlögum til varasjóðs megi líka draga frá. Engin ástæða er til þess, því samvinnufélögin ákveða sjálf, hve mikið þau leggja í sjóð. Þetta hafði ég ekki athugað og hefi því ekki gert brtt. eins og hún ætti að vera, þegar athuguð eru ákvæði g. gr. Vonast ég til að geta gert það, áður en umr. lýkur, og komið henni skriflegri til forseta.
Þá er það d-liðurinn. Þar legg ég til, að ákvæði laganna eins og þau eru nú haldist, sem sé að aukaútsvar, tekjuskatt og eignarskatt megi draga frá tekjunum, þó því aðeins, að þau séu fallin í gjalddaga og greidd að fullu á árinu. Þetta er sjálfsagt skilyrði. Það er engin meining í að leyfa mönnum að safna skatti og útsvörum fleira ára og borga svo upp á tekjuhærri árum. Einnig yrði það sjálfsagt aðhald til skilsemi, ef þetta er tekið fram í lögunum. Ég sé ekki á brtt. hv. þm. Dal. eða annara, sem hafa tekið þetta upp, að þeir hafi gætt þessa.
Ég er ósammála hv. 1. þm. N.-M., að það sé eðlilegt að leyfa ekki frádrátt á skatti og útsvari. Mér finnst það eðlilegur frádráttur. En ég tel, að skattaupphæðirnar eigi að vera hærri. Nú, hv. 1. þm. N.-M. heldur því fram, að það, sem ætlazt sé til að ná með því að leyfa ekki frádráttinn, sé að hækka skattinn af hærri tekjunum. Einfaldasta leiðin væri að ákveða annan skattstiga og leyfa frádrátt á skatti og útsvari. Þessi till. mín er miðuð við, að skattstiganum sé breytt, eins og gert er ráð fyrir í 2. brtt., og ég hefi óbundnar hendur um það, hvernig ég greiði atkv., ef svo fer, að till. um skattstigann verður felld.
Þá er það brtt. við 13. gr. Nokkrar fleiri brtt. hafa komið fram við þessa gr. frv. Aðalatriðið í brtt. minni er, að frádráttur sé mismunandi, eftir dýrtíðinni í ýmsum héruðum landsins. Að vísu er ekki hægt að flokka landið í marga dýrtíðarflokka, heldur aðeins 3 flokka, Reykjavík, hina kaupstaðina og annarsstaðar á landinu. Dýrtíðin er mest í Rvík, svo í hinum kaupstöðunum og minnst í sveitum landsins. Eftir minni till. skal draga frá fyrir einstakling í Rvík 1200 kr., hinum kaupstöðunum 1000 kr. og 800 kr. annarsstaðar á landinu, tvöfalt fyrir hjón og 50% fyrir börn. Þetta svarar til, að fyrir 5 manna fjölskyldu skuli draga frá 4200 kr. í Rvík., 3500 kr. í kaupstöðunum og 2800 kr. annarsstaðar.
Ég hygg, að það orki ekki tvímælis, að þetta er það lægsta, sem hægt er að setja, ef á að framkvæma þetta í þeim anda laganna að leggja skattinn einungis á það, sem umfram er brýnustu nauðsynjar.
Hvað einstaklinga snertir ætti frádrátturinn helzt að hækka nokkuð.
Ég tel það alveg fráleitt að hafa frádráttinn jafnan á öllu landinu. Auk þess er í þessari brtt. gert ráð fyrir, að framfærslueyrir barna, sem er dreginn frá, skuli teljast þar til börnin eru orðin 16 ára, í stað 14 ára, eins og er í gildandi lögum og frv. stj. Það mun, sem betur fer, vera nokkuð algengt viða, að 2 ár eftir 14 ára aldur séu notuð til að afla börnunum menntunar, annaðhvort bóklegrar eða verklegrar. Einmitt með tilliti til þessa er ekki nema sjálfsagt, að foreldrunum sé létt undir með því, að ekki sé hætt að draga frá framfærslueyri þessi 2 ár. Ég held, að það sé rétt hjá mér, að í sumum framfærslulögum, t. d. l. um framfærslu óskilgetinna barna, sé framfærslan miðuð við a. m. k. 15 ára aldur. Í frv. er ekki gert ráð fyrir, að framfærsla skilgetinna barna nái nema til 14 ára. Í þessu er ósamræmi.
Þá kemur að 7. brtt., við 15. gr., um eignarskatt. Á honum geri ég till. um 2 breytingar. Í fyrsta lagi, að skattstiginn hækki um rúm 100% að jafnaði. Í öðru lagi, að ef eignir nema yfir 5 þús. kr., sé greiddur skattur af allri upphæðinni, en ekki að draga 5 þús. frá. Mér finnst það hlægileg heimska, að maður, sem telur fram skuldlausa eign 1 millj. kr., megi draga frá 5 þús. Það munar hann engu.
Eftir brtt. mínum er skatturinn af 10 þús. kr. eign 10 kr., sama og menn eftir frv. greiða af 15 þús. kr. eign. Eftir till. minni er skattur af 100 þús. kr. eign 500 kr. í stað 221 kr. í gildandi lögum og frv. stj., og af 500 þús. kr. eign greiða menn eftir mínum till. 5000 kr., en eftir gildandi lögum og frv. stj. 2121 kr. Hækkunin er að jafnaði 100% og auk þess bætist við skattur af 5 þús. kr. fyrir hvern eignarskattsgreiðanda.
Þá er það 8. brtt., við 20. gr. b-lið, um hvernig telja skuli fram búpening. Í frv. stj. er gert ráð fyrir, að hann skuli talinn fram svo sem hann væri framgenginn í fardögum næst á eftir og með gildandi verðlagsskrárverði. Yfirleitt mun verðlagsskrárverðið vera undir gangverði. En ég álít, að rétt sé og sjálfsagt að komast sem næst gangverði búpeningsins. Ég legg því til, að búpening skuli telja fram með almennu gangverði, svo sem hann væri framgenginn í fardögum næst á eftir.
Þá legg ég til, að e-liðurinn sé orðaður á annan veg en gert er í frv. stj. og gildandi lögum. Eftir mínum till. skulu hlutabréf talin fram með gangverði, ef gangverð er skráð opinberlega. Mestur hluti hlutabréfa, sem hér er um að ræða, hefir ekki skráð gangverð. Eigi því að gera sér hugmynd um verðgildi þeirra, er ekki um aðra leið að gera en að fara eftir efnahagsreikningum félaganna, sem staðfestir eru af aðalfundi. Þeir eru þau beztu gögn, sem hægt er að byggja á. Því legg ég til, að óskrað hlutabréf séu metin samkv. efnahagsreikningi félagsins, eins og hann var samþ. á síðasta aðalfundi þess. Nær er ekki hægt að komast. Skuldabréf og önnur slík verðbréf skal meta eftir nafnverði, nema sérstakar ástæður þyki að telja þau ótrygg. Í mþn. barst í tal, hvort ekki væri rétt að telja skuldir með mjög lágum vöxtum með lægra verði með tilliti til vaxtanna. En það tel ég ekki rétt. Því tók ég það fram, að þær skyldi telja með nafnverði, nema ástæða væri til að telja þær ótryggar, og ekki taka tillit til vaxtanna.
Svo er það 9. brtt., við 33. gr. frv. Ég vil leyfa mér að skýra frá í þessu sambandi, að upphaf 9. brtt. er misorðað. Þar stendur, að 3 fyrstu málsgr. gr. orðist svo, en á að vera: Í stað fyrstu málsgr. komi. Þessar málsgr. koma allar fyrir 1. málsgr. Ég vænti þess, að forseti taki þetta til greina. Þetta ákvæði mun þykja meir formsatriði, og það viðurkenni ég. Ég vil benda þdm. á upphafsorð 33. gr. frv., sem er shlj. gildandi lögum. Þar er svo til orða tekið, að allir þeir, sem skattskyldar tekjur hafi o. s. frv. Þetta finnst mér óviðfelldið orðalag. Það lítur út fyrir eftir þessu, að í rauninni sé framteljendum gert að meta, hvort þeir eigi skattskyldar tekjur eða ekki. Því aðeins senda þeir skýrslu, að þeir áliti sig hafa það. Ef gert er ráð fyrir, að framkvæmdin sé þessu lík, þá hafa skattanefndir og skattstjórar engin tók á að fylgjast með því, hvort bað séu ekki fleiri en þeir, sem talið hafa fram, sem hafi skattskyldar tekjur. Ég vil, að upphaf gr. sé orðað svo: „Allir þeir, er tekjur hafa samkv. 8. gr. eða eignir samkv. 19. gr“. o. s. frv. Síðan eru það skattanefndir og skattstjórar, sem að fengnum upplýsingum meta, hvort tekjurnar eða eignirnar séu svo háar, að menn séu skattskyldir. Skilyrði til þess, að þær geti þetta, er, að þær fái gögnin í hendur. Þá er í öðru lagi gerður munur framtalsfrestum í Rvík og annarsstaðar á landinu. Er það í samræmi við tilskipun, sem gildir um framtal og fresti og annað, sem að logunum lýtur, í Rvík. Ég hygg, að þessi tilskipun hafi verið sett af nauðsyn. Að það hafi sýnt sig, að það hafi ekki verið hægt að vinna úr skýrslunum í Rvík á jafnskömmum tíma og annarsstaðar. Það er ekki hægt að búast við því, þar sem 10 þús. skattgreiðendur eru í Rvík einni, eða rúmur þriðjungur allra skattgreiðenda á landinu.
10. brtt. lýtur að því sama, að veita aðra fresti í Rvík en annarsstaðar. Auk þess er þar nýmæli, þar sem gert er ráð fyrir, að skattskráin sé sundurliðuð, þannig, að hægt sé að sjá skattskyldar tekjur og eignir, ennfremur frádrátt og svo skattupphæðirnar sjálfar. Ég tel sjálfsagt, að í skattskýrslunum séu þær upplýsingar um framtöl skattgreiðenda, og það er meiri trygging um rétt framtöl manna, ef hún lægi frammi, svo mönnum gefist kostur á að sjá hana. Ennfremur er gert ráð fyrir að semja sérstaka skrá um tekju- og eignaframtöl þeirra, sem ekki greiða skatt. Mér finnst sjálfsagt, eins mikil vinna og lögð er í skattskýrslur, að reyna um leið að afla undirstöðu undir sem beztar skýrslur um efnahag Íslendinga.
11. brtt. er í beinu samhengi við síðustu brtt.
12. brtt., sem er við 39. gr. frv., er það einnig. Hún er eingöngu viðvíkjandi frestinum. 13. brtt. er það sömuleiðis, en þar er gert ráð fyrir, að þeir, sem engan skatt hafa greitt, sendi þetta einnig.
14. brtt. er við 41. gr. frv. þar segir svo í frv. stj., að ríkisskattanefnd skuli leggja úrskurð á kærur fyrir lok september og tilkynna lögreglustjóra. En eftir till. minni á nefndin að tilkynna það innheimtumönnum skattsins og aðiljum sjálfum. Hér stendur „lögreglustjóri“, í frv. stj., en það á ekki við, því að tollstjóri innheimtir í Rvík, og því er betra að standi „innheimtumönnum“.
Þá kemur 15. brtt., um starfssvið ríkisskattanefndar. Ég geri það ekki að neinu kappsmáli, hvort gr. verður samþ. eða ekki. Munurinn er einungis sá, að í till. minni er það tekið fram í byrjun gr., hvað sé aðalverkefni nefndarinnar.
Þá kemur 16. brtt., við 46. gr., um innheimtu skattsins. Í þeirri gr. eru nýmæli frá því, sem er í gildandi lögum og frv. stj. Fyrst er það, að menn greiði 1% dráttarvexti á mánuði, sé skatturinn ekki greiddur innan mánaðar frá gjalddaga. Svo, að fjmrh. geti með reglugerð sett fyllri ákvæði um innheimtuna. Og í þriðja lagi, að hann megi í reglugerðinni kveða á um tilbúning skattmerkja. Með þessu móti ætti að vera auðveldara og betra að innheimta skattinn.
Þá kemur 17. brtt., þar sem gert er ráð fyrir, að bæjar- og sveitarstjórnum sé heimilt að taka 50% álagningu á skattinum til sinna þarfa, og ef þau nota þessa heimild, fái þau einnig 1/3 af eignarskattinum. Þetta er í raun og veru svar við því, sem hv. 1. þm. N.- M. sagði áðan, að með frv. mínu væri beinlínis verið að ganga á tekjustofn sveitar- og bæjarfélaga. Ég er á þeirri skoðun, að bæjar- og sveitarfélög og ríkissjóður verði að byggja sem mest á þessum skattstofni, eignum og tekjum.
Eins og gildandi skattalöggjöf er, fer oft svo, að skattur er greiddur af mönnum, sem í raun og veru geta engan skatt greitt. Þeir, sem kosta fátæka, greiða toll af öllum nauðsynjum þeirra manna, sem þeir framfæra, hvort sem það eru sjúkir menn eða fatlaðir eða geta ekki unnið af öðrum ástæðum. Vitaskuld verða skattar að greiðast af tekjum borgaranna í heild sinni, en þeir skattar, sem lagðir eru á nauðsynjar manna, verða eingöngu til þess að auka dýrtíðina í landinu. Hinsvegar verða skattar, sem lagðir eru á það, sem borgararnir hafa umfram það, sem þeir þurfa til framfæris, ekki til þess að auka dýrtíðina með því að hækka vöruverð, né heldur verða þeir til þess, að menn stofni sér í skuld til þess að greiða skatt. Hv. þm. virðist hallast að því, að rétt sé að halda því, sem nú er, þannig, að af 3 þús. kr. tekjum 5 manna fjölskyldu er tekið 10–11 % í tolla og skatta, en af 15 þús. kr. tekjum 5 manna fjölskyldu er ekki tekið nema 6–7%. Þetta er mikill ágreiningur milli mín og þeirra, sem standa að frv. hæstv. stj. Af tekjum borgaranna verðum við að fá skattana, — en eigum við að leggja á það, sem er undir því lágmarki, sem menn þurfa til framfæris síns? Mér finnst, að svo sé ekki, en eftir stjfrv. á að gera það.
Um aðrar brtt. sé ég ekki ástæða til að fjölyrða, og mun ég sýna afstöðu mína til þeirra við atkvgr.